
Samsæriskenning um þetta hefur farið víða á netinu undanfarnar vikur og snýr hún að meintu „leyniskjali“ sem á að hafa verið lekið frá NASA.
Í meintu skjali er greint frá verkefni sem kallað er „Project Anchor“ og miðar að því að undirbúa mannkynið fyrir skelfilegan atburð í ágúst.
Þann dag er fullyrt, samkvæmt kenningunni, að jörðin missi þyngdarkraft sinn í sjö sekúndur með þeim afleiðingum að allt að 40 milljónir manna muni látast af völdum ýmissa slysa. Þessar hörmungar áttu að vera afleiðing áreksturs tveggja svarthola samkvæmt samsæriskenningunni.
Í frétt New York Post kemur fram að kenningin hafi vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum, einkum á X og Instagram. Bentu notendur á að kenningin virtist „trúverðug“ þar sem hún innihélt ýmis smáatriði, til dæmis varðandi dagsetningu, heiti verkefnis og tilgreinda fjárhæð, um 89 milljónir Bandaríkjadala sem fullyrt var að NASA hefði varið í verkefnið.
„Ef þetta er fals, hvers vegna eru þá svona mörg smáatriði?“ spurði einn notandi.
Við nánari skoðun reyndist sagan hins vegar vera uppspuni. Netrannsakendur sem fóru á stúfana fundu engin ummerki um meint skjal, hvorki í opinberum gögnum né í neinum trúverðugum leka.
Bendir New York Post á það í umfjöllun sinni að uppruna kenningarinnar má rekja til Instagram-reikningsins @mr_danya_of, sem er vel þekktur fyrir að birta falsupplýsingar, en þrátt fyrir það ýttu aðrir notendur undir frásögnina og gerðu hana jafnvel enn bitastæðari.
Staðreyndaprófunarsíðan Snopes leitaði skýringa hjá NASA. Þar var fullyrðingunum hafnað afdráttarlaust. „Jörðin mun ekki missa þyngdarafl sitt 12. ágúst 2026,“ sagði talsmaður stofnunarinnar.
Hann útskýrði jafnframt að þyngdarafl jarðar ráðist af massa hennar og eina leiðin til að það hyrfi væri sú að jörðin sjálf myndi missa verulegan hluta af massa sínum, sem væri algjörlega óhugsandi.