
Harmleikur átti sér stað í mars árið 2024 í Ohio, Bandaríkjunum, er aldraður maður skaut Uber-leigubílstjóra til bana. Þetta gerði hann því hann taldi leigubílstjórann hafa ætlað að svíkja út úr sér fé. Brögð voru þó í tafli. Hinn 83 ára William J. Brock hefur nú verið sakfelldur í málinu sem þykir einstaklega sorglegt þar sem í ljós hefur komið að svikahrappur blekkti bæði Brock og leigubílstjórann með áðurnefndum afleiðingum.
Þegar leigubílstjórinn, hin 61 árs gamla Lo-Letha Toland-Hall, mætti að heimili Brock beið hann hennar vopnaður. Hann hafði fengið hótanir í gegnum síma sem beindust bæði gegn honum og fjölskyldu hans þar sem hann var meðal annars krafinn um 1,5 milljón til að sleppa við ofbeldi.
Þegar Toland-Hall mætti á svæðið taldi Brock öruggt að þarna væri einhver á vegum hringjandans, enda sagðist Toland-Hall vera þangað komin til að sækja pakka og taldi Brock að þar væri hún að vísa til peninganna sem hann hafði verið krafinn um. Hann krafðist þess að Toland-Hall upplýsti hann um hver stæði á bak við hótanirnar. Síðan stigmögnuðust aðstæður. Brock tók farsímann af Toland-Hall og meinaði henni að yfirgefa vettvanginn. Þegar hún reyndi engu að síður að komast aftur inn í bifreið sína skaut Brock hana sex sinnum.
Toland-Hall taldi sig virkilega vera að sækja pakka. Pöntunin hafði komið í gegnum smáforritið Uber en ljóst er að það var ekki Brock sem lagði inn þá pöntun. Talið er að það hafi verið sami svikahrappur sem hringdi í Brock og lagði inn pöntunina hjá Uber.
Brock var sakfelldur fyrir morð, líkamsárás og mannrán. Hann neitaði sök í málinu og sagði að um sjálfsvörn hafi verið að ræða enda hafi hann óttast um líf sitt og talið að Toland-Hall væri komin að heimili hans til að ræna hann.
Ákæruvaldið sagði í samtali við fjölmiðla eftir að dómurinn féll að um einstakan harmleik væri að ræða. Tvær fjölskyldur væru í sárum út af svikum.
„Það sorglegasta við þetta allt er að við vitum að það eru enn glæpamenn þarna úti. Við vitum að svikahrapparnir, fólkið sem stóð á bak við þetta, hafa ekki verið dregnir til ábyrgðar. “