fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Mætti með látlaust barmmerki á rauða dregilinn – Sagðist ekki geta þagað lengur og kallaði Trump barnaníðing og varaforsetann lygara

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 14:30

Mark Ruffalo ásamt eiginkonu sinni Sunrise Coigney. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Mark Ruffalo mætti eins og flestar stjörnur Hollywood á Golden Globe verðlaunahátíðina á sunnudag. Ruffalo var með lítið barmmerki, hvítt sem á stóð „BE GOOD“.
Blaðamaður USA Today kallaði til Ruffalo og spurði hann út í barmmerkið.

„Þetta er fyrir Renee Nicole Good, sem var myrt,“ sagði leikarinn.

Good var 37 ára gömul kona sem var skotin til bana af fulltrúa Útlendingaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) Jonathan Ross í Minneapolis, Minnesota, þann 7. janúar.

Sjá einnig: Þetta er konan sem var skotin til bana í Minneapolis í gær – 37 ára þriggja barna móðir

Ruffalo bar merkið „BE GOOD“ ásamt nokkrum öðrum frægum einstaklingum á verðlaunaafhendingunni vegna atviksins. Innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur varið ICE-fulltrúann og haldið því fram að Good hafi reynt að keyra yfir fulltrúann og að valdbeiting hans hafi því verið réttlætanleg.

Ruffalo fór ekki fögrum orðum um Bandaríkjaforseta Donald Trump og varaforsetann J.D. Vance:

„Við erum með varaforseta sem lýgur um það sem er að gerast. Við erum í miðju stríði við Venesúela sem við réðumst ólöglega inn í. [Trump] er að segja heiminum að alþjóðalög skipti hann ekki máli. Það eina sem skiptir hann máli er hans eigið siðferði, en gaurinn er dæmdur glæpamaður; dæmdur nauðgari. Hann er barnaníðingur.“

Ruffalo hélt áfram með álit sitt á Trump:

„Hann er versta manneskjan. Ef við reiðum okkur á siðferði þessa manns fyrir öflugasta land í heimi, þá erum við öll í miklum vandræðum.“

Ruffalo grípur í barnmerkið og segir: Þannig að þetta er fyrir hana. Þetta er fyrir fólkið í Bandaríkjunum sem er ógnað og er hrætt í dag. Ég veit að ég er einn af þeim. Ég elska þetta land og það sem ég er að sjá gerast er ekki Bandaríkin.“

Aðspurður um hvort rauði dregillinn og verðlaunahátíð líkt og Golden Globes sé rétti vettvangurinn til að vekja athygli á pólitískum málefnum svarar Ruffalo:

„Hlustið, ég vil láta eins og ekkert sé, ég vil vera hér til að fagna, og ég er hér til að fagna, og ég er stoltur af því að vera tilnefndur til Golden Globe verðlaunanna. En þetta er ekki lengur eðlilegt, og því veit ég ekki hvernig ég get þagað bara, og mér finnst komiðnóg, svo það er erfitt að bulla núna.“

Í maí 2024 var Trump sakfelldur fyrir 34 alvarleg brot fyrir að falsa viðskiptagögn. Sama ár var hann einnig fundinn ábyrgur fyrir kynferðisofbeldi gegn E. Jean Carroll árið 1996 af kviðdómi; hann var þó ekki sakfelldur þar sem um einkamál var að ræða. Trump hefur ekki verið ákærður fyrir kynferðisbrot, þar á meðal barnaníð. Tengsl forsetans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein hafa verið margnefnd í umfjöllunum fjölmiðlja og hvort og þá með hvaða hætti nafn Trump sé í Epsteinskjölunum.

Steven Cheung, aðstoðarforseti og samskiptastjóri Hvíta hússins, hefur svarað athugasemdum Ruffalo. Hann skrifaði á X og Page Six um Ruffalo og aðrar stjörnur sem létu í ljós athugasemdir gegn ICE: „Aumingja Mark Ruffalo, stjarna She-Hulk, er einn versti leikarinn í bransanum. Það sem meira er, hann er enn verri manneskja með því að spúa út beinum lygum vegna þess að innst inni hatar hann sjálfan sig fyrir að hafa vísvitandi sýnt almenningi hræðilega frammistöðu sína.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu