fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Hvíta húsið skráir lénið Aliens.gov

Pressan
Fimmtudaginn 19. mars 2026 08:05

Donald Trump, Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvíta húsið í Washington hefur hljóðlega tryggt sér nýtt lén sem er líklegt til að vekja athygli og vangaveltur víða um heim.

Samkvæmt fréttamiðlinum 404 Media var lénið Aliens.gov skráð af framkvæmdaskrifstofu forseta Bandaríkjanna snemma í gærmorgun. Slóðin vísar þó enn ekki á virka vefsíðu og óljóst er hvaða tilgangi hún mun þjóna.

Tímasetning skráningarinnar kemur í kjölfar yfirlýsinga forsetans Donald Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social fyrir um mánuði, þar sem hann hét því að fyrirskipa birtingu opinberra gagna sem tengjast mögulegu lífi í geimnum og fljúgandi furðuhlutum.

Eru líkur taldar á því að síðan muni gegna því hlutverk að hýsa hin ýmsu gögn sem safnað hefur verið saman í gegnum tíðina. Trump sagði að hann hygðist fela Pete Hegseth, varnarmálaráðherra sínum, og öðrum alríkisstofnunum að hefja vinnu við að greina og opinbera skjöl um það sem hann kallaði „afar áhugaverð og mikilvæg málefni“.

Sumir fjölmiðlar vestan hafs, Gizmodo og Daily Beast þar á meðal, hafa lýst efasemdum um að skráning lénsins muni leiða til raunverulegrar upplýsingagjafar um geimverur og fljúgandi furðuhluti. Gizmodo gengur svo langt að tala um að Trump sé að reyna að beina athyglinni frá erfiðum málum heima fyrir og í alþjóðamálum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum
Pressan
Í gær

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?