fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Pressan

Hneppti fatlaða unglingsstúlku í þrældóm og beitti hana hrottalegu ofbeldi í 25 ár

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 13:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 56 ára gamli Breti, Amanda Wixon, hefur verið dæmd í 13 ára fangelsi eftir að hún hneppti unglingsstúlku í þrældóm á heimili sínu og lét hana ganga í gegnum hreint helvíti næstu 25 árin.

Þolandi Amöndu hefur ekki verið nafngreind en hún er í dag á fimmtugsaldri. Hún flutti inn til Amöndu og barna hennar 10 árið 1995. Hún glímir við greindarskerðingu og ætlaði að dvelja hjá Amöndu á heimili hennar í bænum Tawkesbury, í norðurhluta Gloucestershire á Englandi, yfir helgi eftir að hafa lent í deilum við fjölskyldu sína. Amanda leyfði henni þó ekki að fara að helginni liðinni heldur hélt henni fanginni allt til ársins 2021 þegar henni var bjargað.

Málið þykir ævintýralega hrollvekjandi. Þolandinn var beittur gífurlegu harðræði. Til dæmis var hún reglulega lamin með kústskafti, uppþvottalegi var hellt ofan í háls hennar, klóri skvett framan í hana og auk þess var hún ítrekað snoðuð gegn hennar vilja.

„Í 25 ár lifði ég við ótta, stjórnlyndi og ofbeldi. Komið var fram við mig líkt og líf mitt, frelsi og rödd mín hefði ekkert vægi. Þó að gerandi minn hafi nú verið sakfelldur þá er áfallið og martraðirnar eitthvað sem ég ber enn með mér,“ sagði þolandinn eftir að dómurinn var kveðinn upp.

Konan þurfti að lifa af fátæklegum matarafgöngum fjölskyldunnar. Hún mátti ekki yfirgefa heimilið og var þvinguð til að þrífa sig í leyni í skjóli nætur. Amanda og fjölskylda hennar bjuggu í niðurníddu húsnæði þar sem mátti finna myglu á veggjum og rusl í bakgarðinum.

Amanda var sakfelld fyrir frelsissviptingu, nauðungarvinnu og fyrir fjögur ofbeldisbrot. Dómarinn í málinu tók fram að Amanda væri enn í afneitun um afleiðingar brota sinna. Hann sakaði Amöndu um gífurlega grimmd.

Það var einn af sonum Amöndu sem gerði lögreglu viðvart um málið. Lögregla ákvað þá að framkvæma leit á heimilinu og fann þá konuna sem sagði við lögreglumann: „Ég vil ekki vera hér. Ég upplifi mig ekki örugga. Mandy er stöðugt að lemja mig. Mér finnst það ekki gaman. Ég hef ekki fengið að þrífa mig árum saman. Hún leyfir mér það ekki.“

Allt frá árinu 1995 til 2021 hafði þolandinn hvorki hitt lækni né tannlækni. Dómari taldi þetta sanna að henni hafi verið haldið nauðugri. Hafði konan meðal annars misst þó nokkrar tennur vegna tannskemmda. Hún var á mörkum þess að teljast vannærð, var með ör á vörum og andliti og mikið og þykkt sigg á bæði fótum og ökklum eftir að hafa stöðugt verið gert að skríða um gólf heimilisins til að þrífa. Einn nágranni lýsti því svo að konan liti út fyrir að vera nýkomin úr útrýmingarbúðum nasista. Hún hafi ekki verið nema skinn og bein.

Konan býr nú með fósturfjölskyldu, gengur í háskóla og hefur fengið að njóta lífsins í ferðalögum. Hún glímir þó enn við martraðir og er með þráhyggju fyrir hreinlæti.

Undir rekstri málsins kom í ljós að börn Amöndu höfðu átt óásættanlegt uppeldi. Þau höfðu ekki fengið nauðsynlegar bólusetningar, fengu ekki að ganga í skóla, voru með rotnandi tennur og lús.

Amanda neitaði sök og vildi meina að sonur hennar, sem sagði til hennar, væri að hefna sín á henni. Eftir að dómurinn var kveðinn upp var hún spurð hvort hún hefði eitthvað við þolanda sinn að segja. „Nei, ekki mikið,“ sagði Amanda og var þá spurð hvort hún sæi eftir brotum sínum. „Nei, ég hef ekkert gert.“

Blaðamenn spurðu hana þá hvort hún væri skrímsli. Amanda stoppaði, kveikti sér í sígarettu og svaraði svo: „Hvað heldur þú? Hvers vegna ætti ég sjá eftir einhverju sem ég segist aldrei hafa gert?“

Independent greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ekkja kennarans sem lést stígur fram og lýsir því sem hún vill að gerist

Ekkja kennarans sem lést stígur fram og lýsir því sem hún vill að gerist
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sprenguárásin á stúlknaskólann í Íran – Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar ekki jákvæðar fyrir Bandaríkin

Sprenguárásin á stúlknaskólann í Íran – Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar ekki jákvæðar fyrir Bandaríkin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig