
„Þú þarft ekki að lífhakka þig til að lifa lengi. 20 mínútna göngutúr á dag getur verndað hjartað árum saman. Þetta getur einfaldlega bjargað lífi þínu,“ skrifaði hann að sögn Hindustan Times.
Hann bætti við að daglegur göngutúr geti „dregið úr hættunni á hjartasjúkdómum um allt að 50 prósent“. Þar vísaði hann til rannsóknar frá 2023 sem sýndi fram á að 20 til 30 mínútna daglegur göngutúr geti dregið úr hættunni á að fá hjartasjúkdóm um 49%.
Það sem daglegir göngutúrar gera er að þeir hjálpa líkamanum við að halda blóðþrýstingnum í jafnvægi, bæta blóðflæðið og hjartaryþmann. Þeir verða einnig til þess að magn stresshormónsins kortísón minnkar og þess utan bæta þeir skapið!
Bhojraj sagði í færslu sinni að þetta snúist ekki um að æfa með mikilli ákefð eða hversu margir kílómetrar séu gengnir. Þetta snúist um að hreyfa sig reglulega. „Það þarf ekki að stunda æfingar í líkamsræktarstöð til að lifa lengi, þetta byrjar með göngutúr,“ sagði hann.