fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Alræmdur morðingi berst fyrir lífi sínu eftir fólskulega árás í morgun

Pressan
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 13:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski morðinginn Ian Huntley berst nú fyrir lífi sínu eftir að ráðist var á hann í HMP Frankland-fangelsinu í Durham í morgun. Huntley þessi, sem er 52 ára, afplánar lífstíðardóm fyrir morðin á hinum 10 ára gömlu Holly Wells og Jessicu Chapman árið 2002.

Breskir fjölmiðlar greina frá því að ráðist hafi verið á Huntley með járnstöng á meðan hann var við vinnu í fangelsinu ásamt öðrum.

Sjá einnig: Ian Huntley var sakleysið uppmálað þegar Holly og Jessica hurfu

Ekki liggur fyrir hver það var sem réðst á hann en í frétt Daily Mail kemur fram að Huntley hafi notið aukinnar verndar fangelsisyfirvalda vegna hótana og ógnana frá öðrum föngum.

Huntley var húsvörður í skóla Holly og Jessicu en hann myrti stúlkurnar eftir að hann lokkaði þær inn á heimili sitt. Huntley losaði sig við líkin í ræsi í um 30 kílómetra fjarlægð, skammt frá athafnasvæði Konunglega breska flughersins í Lakenham í Suffolk.

Huntley bar eld að líkunum í tilraun til að eyðileggja allt sem hugsanlega gæti bendlað hann við ódæðið. Lík stúlknanna fundust hálfum mánuði eftir að þær hurfu.

Ítrekað hefur verið ráðist á Huntley í fangelsinu og var hann til dæmis skorinn á háls árið 2010. Þá tókst læknum naumlega að bjarga lífi hans.

Hér má lesa umfjöllun DV um hin hrottafengnu morð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu