
Tíu ára drengur var myrtur og móðir hans er illa særð eftir sveðjuárás á heimili í suðurhluta Tenerife, nánar tiltekið í bænum Cabo Blanco.
Canarian Weekly greinir frá.
Atburðurinn átti sér stað á föstudagsnótt. Er lögregla koma á vettvang lá 10 ára drengur í blóði sínu eftir sveðjuárás. Var ekki lífsmark með drengnum. Árásarmaðurinn var faðir drengsins. Móðirin var illa særð eftir sveðjuáverka frá manninum en það tókst að koma henni á sjúkrahús þar sem hún liggur þungt haldin.
Maðurinn streittist gegn handtöku og réðst að lögreglumönnum með sveðjunni og særðist einn lögreglumaður alvarlega en maðurinn hjó í annan handlegg hans. Var lögreglumaðurinn fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu.
Lögreglumenn neyddust til að skjóta árásarmanninn og lét hann lífið á vettvangi.
Lögregla hefur staðfest að árásarmaðurinn er með hreina sakaskrá og engar tilkynningar höfðu borist um ofbeldi á heimilinu. Málið er til áframhaldandi rannsóknar.
Sjá nánar hér.