
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að stór hluti þeirra tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á innflutning á grundvelli laga um efnahagsvald í neyðartilvikum séu ólöglegir.
Að sögn CNN er þessi niðurstaða að öllum líkindum stærsta áfallið sem ríkisstjórn Trump hefur orðið fyrir hjá æðsta dómstiginu, sem þó þykir hafa íhaldssama slagsíðu.
Að sögn meirihluta Hæstaréttar hefði Trump þurft að fá samþykki þingsins fyrir tollunum. Ekki er víst hvaða þýðingu niðurstaðan hefur fyrir þá tolla sem ríkisstjórnin hefur þegar innheimt en líklega verður tekist á um það fyrir dómstólum á næstunni.
Dómarinn Brett Kavanaugh skrifaði sératkvæði þar sem hann gerði athugasemd við að meirihlutinn hafi ekki tekið afstöðu til þess hvað ríkisstjórnin eigi nú að gera við þá mörgu milljarða sem tollarnir hafa skilað í ríkissjóð en líklega muni það hafa hrottalegar afleiðingar á bandarískt efnahagslíf ef ríkisstjórnin þarf að endurgreiða þá.
Dómurinn var klofinn í niðurstöðunni en meirihlutann skipuðu sex dómarar af níu. Þrír dómarar skiluðu sératkvæði.