fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Trump búinn að undirbúa ræðu til að tilkynna tilvist geimvera

Pressan
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 12:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tengdadóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, Lara Trump, segir að forsetinn sé með ræðu tilbúna ef til þess kemur að hann þurfi að tilkynna heiminum að geimverur séu til. Þetta kemur fram í hlaðvarpinu Pod Force One hjá New York Post.

Lara var spurð út í geimverur eftir að fyrrum Bandaríkjaforseti, Barack Obama, sagðist trúa á fljúgandi furðuhluti og gaf til kynna að hann hafi séð eitthvað slíkt þegar hann gegndi embætti.

„Heldurðu að hann [Donald Trump] sé að fara að koma með tilkynningu um fljúgandi furðuhluti?“ spurði þáttastjórnandi og vísaði í orð Obama.

Lara svaraði:

„Það sem er frekar fyndið er að ég hef spurt tengdaföður minn út í þetta því við vorum bara: Svo, hvað veistu?“

Lara tók fram að Trump hafi lítið viljað segja sem gerði að verkum að bæði Lara og eiginmaður hennar, Eric Trump, telja að það sé eitthvað til að vita.

„Ég hef heyrt það útunda mér, eða það er að segja tengdafaðir minn hefur í raun sagt það, að það sé tilbúin ræða sem hann hefur svo þegar tíminn kemur, ég veit ekki hvenær, þá mun hann stíga fram og ræða þetta og það tengist einhvers konar lífi utan jarðarinnar, ef svo mætti segja.“

Obama var, eins og áður segir, spurður út í geimverur og svaraði: „Þær eru til, en ég hef ekki séð þær og þeim er ekki haldið í hvað er það kallað, einhvers konar neðanjarðarhúsnæði, ekki nema það sé risastórt samsæri og það sá falið fyrir forseta Bandaríkjanna.“

Þetta vakti svo gífurlega athygli að Obama hefur nú útskýrt mál sitt frekar og segist aðeins hafa verið að vísa í sínar eigin skoðanir. Heimurinn sé risastór og tölfræðilega séu góðar líkur á því að líf þrífist einhvers staðar utan jarðarinnar.

Samskiptafulltrúi Hvíta hússins, Karoline Leavitt, var líka spurð út í geimverur á dögunum og hvort Trump trúi á líf utan jarðarinnar.

„Það þætti mér persónulega áhugavert að vita og líklega öllum hér inni, og greinilega trúir Obama fyrrum forseti því líka. Svo ég mun svara ykkur síðar,“ sagði Leavitt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu