fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Starfskona á hjúkrunarheimili sakfelld fyrir að fróa langveikum manni

Pressan
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 20:30

Mynd: Getty. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donna Gillet, 43 ára gömlu fyrrverandi starfskona á hjúkrunarheimili Englandi (Winsford Grange Care Home í Cheshire) hefur verið sakfelld fyrir kynferðisbrot vegna atviks sem átti sér stað þar sumarið 2023.

Donna er var sökuð um að hafa gripið um getnaðarlim 77 ára gamals sjúklings á heimilinu og hreyft hann taktfast, og leyft manninum að káfa á afturenda sínum. Þetta gerði Donna fyrir framan vinnufélaga en þau voru bæði að sinna gamla manninum, sem var með heilabilun, Parkinson-sjúkdóminn og þjáðist af ýmsum öðrum kvillum. Á meðan Donna snerti gamla manninn óviðurkvæmilega og leyfði honum að snerta sig viðhafði hún kynferðislegar athugasemdir.

Þess má geta að gamli maðurinn sem Donna braut gegn er látinn.

Dómur féll loks í máli Donnu við dómstól í Chester síðasta föstudag. Var hún dæmd í skilorðbundið fangelsi og samfélagsþjónustu. Auk þess verður hún skráð á lista yfir kynferðisbrotamenn. Hún sleppur hins vegar við að sitja í fangelsi.

Dómari ávarpaði Donnu er hann kvað upp dóminn yfir henni. Sagði hann að það hefði verið lán að Donna framdi brot sitt fyrir framan annan starfsmann sem lét sig málið varða og tilkynnti það. Hins vegar veki þessi framganga hennar í allra augsýn óþægilegar hugmyndir um hvernig hún hafi hagað sér ein með sjúklingum. Hann benti jafnframt á að gamli maðurinn hefði ekki verið í ástandi til að skilja og leggja mat á aðstæður er brotið var framið.

„Sem betur fer er búið að fyrirbyggja að þú getir gert þetta í framtíðinni. Það eina rétta er að þú fáir aldrei aftur að hafa berskjaldað og veikt fólk í þinni umsjá,“ sagði dómarinn.

Nánar má lesa um málið hér. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér