fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Rakst á snjóhlébarða og ákvað að taka sjálfu – Lifði hræðilega árás naumlega af

Pressan
Laugardaginn 31. janúar 2026 18:30

Myndir frá vettvangi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínversk kona varð fyrir skelfilegri árás snjóhlébarða á dögunum. Atvikið átti sér stað á vinsælu skíðasvæði í Xinjiang-héraði í norðvesturhluta Kína þann 23. janúar síðastliðinn. Konan var þar að renna sér niður brekku þegar að hún sá skyndilega hið sjaldgæfa rándýr á vappi. Í stað þess að forða sér þá ákvað konan að stoppa, taka upp símann sinn og freista þess að taka sjálfu með dýrinu.

Sú ákvörðun hafði skelfilegar afleiðingar því snjóhlébarðinn réðst á konuna og beit hana í andlitið. Nærliggjandi skíðafólk náði að fæla rándýrið frá konunni og koma henni til bjargar. Hún hlaut alvarleg meiðsli en ástand hennar er stöðugt.

Myndskeið af vettvangi atviksins hafa verið í dreifingu á kínverskum samfélagsmiðlum.

Sjóhlébarðar eru í útrýmingarhættu og njóta sérstakrar verndar í Kína. Það er því afar sjaldgæft að fólk rekist á dýrin úti í guðsgrænni náttúrunni. Í kjölfar árásarinnar hafa yfirvöld ytra áréttað að almenningur forðist návígi við snjóhlébarða í hvívetna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu