fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Pressan

Flugfarþegi ærði samferðamenn með furðulegu athæfi

Pressan
Föstudaginn 30. janúar 2026 17:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvenkyns flugfarþegi olli mikilli óánægju meðal samferðamanna sinna í flugi Qatar Airways á leið frá Doha í Qatar til Moskvu í Rússlandi . Eins og sjá má á myndbandi sem dreift var á netinu notaði konan sætisbakið fyrir framan sig sem fótskemil.

Vitni segja konuna hafa orðið órólega eftir að farþeginn fyrir framan hana hallaði sæti sínu aftur. Aðrir héldu því hins vegar fram að konunni, sem talið er að sé rússnesk, hafi verið neitað um uppfærslu og hún hefði því ákveðið að mótmæla með því að setja fætur sína á loft.

Myndskeiðið sýnir konuna hvíla fæturna á sætisbakinu fyrir framan sig, með þeim afleiðingum að konan í því sæti þarf að halla sér fram um leið og hún vinnur í tölvu sinni.

Á einum tímapunkti klappaði konan skóm sínum saman og hristi jafnframt sætið.

Samferðamenn og flugþjónar báðu konuna ítrekað að láta af athæfi sínu og taka fæturnar niður, en án árangurs.

„Þau reyndu að sannfæra hana, reyndu og reyndu,“ sagði einn áhorfandi. „Þau reyndu að sannfæra hana um að færa fæturna. Hún vildi það ekki, hún vildi fljúga svona. Fólk er að verða brjálað.“

Aðrir farþegar gerðu gys að konunni og einn þeirra sagði í gríni að þau væru að ferðast á „óþægindafarrými“.

„Þetta er viðskiptafarrými,“ sagði einn maður kaldhæðnislega, en kona sagði athæfi sem þetta aðeins geta átt sér stað í Rússlandi.

Myndskeiðið endaði með því að flugfreyja kraup niður og útskýrði fyrir konunni að hún þyrfti að fjarlægja fæturnar af sætinu. Að lokum gafst konan upp og gerði það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Segja þetta geta verið ástæðuna fyrir að þú ert einhleyp(ur)

Segja þetta geta verið ástæðuna fyrir að þú ert einhleyp(ur)
Pressan
Í gær

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín
Pressan
Í gær

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán
Pressan
Fyrir 3 dögum

Alræmdur morðingi berst fyrir lífi sínu eftir fólskulega árás í morgun

Alræmdur morðingi berst fyrir lífi sínu eftir fólskulega árás í morgun