
Þetta sagði Trump í gær þar sem hann virtist herða enn á kröfum sínum um að Bandaríkin næðu yfirráðum yfir Grænlandi. Sagði Trump að honum væri alveg sama þó að slík yfirtaka setti starf NATO í uppnám.
„Ef það hefur áhrif á NATO, þá hefur það áhrif á NATO. En þeir þurfa miklu meira á okkur að halda en við á þeim, ég get alveg sagt ykkur það.“
Trump hefur að undanförnu ýjað að því að hann hafi áhuga á að kaupa Grænland og var hann spurður að því í gær hvort hann væri búinn að leggja fram einhvers konar tilboð. Trump sagðist ekki hafa gert það enn sem komið er.
„En Grænland ætti að gera samninginn, því Grænland vill ekki sjá Rússland eða Kína taka yfir,“ sagði hann og bætti svo síðar við: „Ef við tökum ekki Grænland þá munu Rússar eða Kínverjar gera það. Og ég ætla ekki að leyfa það, með einum eða öðrum hættum munum við fá Grænland.“
Trump viðurkenndi að viðbrögðin gætu orðið hörð en gaf þó í skyn að NATO væri mögulega ekki ómissandi.
„Kannski yrði NATO ósátt ef ég gerði þetta… við myndum spara helling af peningum. Mér líkar NATO. En ég velti því fyrir mér hvort NATO myndi vera til staðar fyrir okkur ef á þyrfti að halda. Ég er ekki viss um það,“ sagði Trump.