Krumpaður miði á salerni skyndibitastaðarins Jersey Mike’s Subs kann að hafa bjargað lífi konu og leitt yfirvöld í Flórída að húsi þar sem konan fannst. Kærasti konunnar, Jordan Williams, 34 ára, var handtekinn á vettvangi og ákærður fyrir alvarlega líkamsárás með banvænu vopni, mannrán og frelsissviptingu, alvarlegt brot og minniháttar líkamsárás og kyrkingarárás.
Starfsmaður skyndibitastaðarins fann miðann, sem innihélt beiðni um hjálp og heimilisfang íbúðar í nágrenninu, og hringdi á lögregluna.
„Það var lítill krumpaður pappírsmiði sem var búið að troða við hliðina á klósettpappírshaldaranum okkar og miðinn leit út fyrir að vera rusl,“ sagði starfsmaðurinn Eleanor Coffee við NBC 15. „Á miðanum stóð: „Vinsamlegast hjálpið mér. Ég er á þessu heimilisfangi í Navarre. Þið verðið að hringja í lögregluna og fá hana til að gera velferðarathugun (e. Wellness Check).’“
Starfsmenn hringdu á lögregluna sem fór á viðkomandi heimilisfang. Þar fann hún 29 ára gamla konu sem hafði verið misþyrmt og lýsti konan því yfir að hún hefði mátt þola „ítrekaðar árásir, hótanir með vopnum og henni hefði verið haldið í einangrun í nokkra mánuði“, samkvæmt fréttatilkynningu lögreglunnar.
Konan var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar vegna mikilla áverka, þar á meðal gruns um beinbrot.
Í fréttatilkynningunni kom fram að Williams hefði ítrekað komið við sögu vegna heimilisofbeldis. Williams er glímumaður í félagi á svæðinu og keppir undir nafninu „Jayden Steele“. Hann var færður í fangelsið í Santa Rosa-sýslu á fimmtudag og gert að vera í haldi án tryggingar. Gert er ráð fyrir að ákæra verði gefin út 19. júní.