fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

TACO er nýja viðurnefni Trump og honum er ekki skemmt – Er sannleikskorn í kenningunni?

Pressan
Mánudaginn 2. júní 2025 03:14

Trump er ekki sáttur. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta kallast samningaviðræður. Þetta sagði Donald Trump þegar fréttamaður í Hvíta húsinu spurði hann hvort það sér rétt að hann bakki með hótanir sínar um að leggja tolla á ríki heims.

„Að ég bakki? Það hef ég aldrei heyrt um,“ svaraði Trump.

Spurningunni var varpað fram eftir að myndbönd  og „memes“ af Trump og mexíkóskum mat, meðal annars Taco, flæddu yfir Internetið.

Ástæðuna er að finna í skammstöfuninni TACO, sem stendur fyrir „Trump Always Chickens Out“ (Trump bakkar alltaf).

Upphafsmaður að þessu er Robert Amstrong, greinahöfundur hjá Financial Times en hann notaði þetta orð í grein um tollataktík Trump í byrjun maíl.

Trump var ekki sáttur við spurninguna og sagði hana þá ljótustu sem hann hafi nokkru sinni fengið.

En er sannleikskorn í TACO-kenningunni?

Mikael Olai Milhøj, aðalsérfræðingur og hluthafi í fjárfestingarfyrirtækinu Sterna Capital, ræddi við TV2 um málið og sagði að það sé sannleikur í því sem Amstrong skrifaði.

Hann benti á að þegar Trump tilkynnti um 50% toll á Evrópusambandið hafi viðbrögðin á hlutabréfamarkaði ekki verið mjög mikil og þrátt fyrir lækkun þá hafi markaðurinn fljótt jafnað sig. Ástæðan sé að trúverðugleiki hótana Trump sé ekki eins mikill og áður og að áhyggjur af slæmu viðskiptastríði séu horfnar.

„Það getur verið að hótanir séu settar fram öðru hvoru en markaðirnir telja þær ekki trúverðugar því þeir hafa séð að þegar kemur hlutunum, þá gerir stjórn Trump ekki það sem hún segist ætla að gera,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana