Rússar gera nú mikla leit að úkraínskum hjónum, karli og konu, sem þeir segja að eigi þátt í hinni miklu árás sem Úkraníumönnum tókst að gera á flugflota rússneska hersins um helgina með þeim afleiðingum að nokkur fjöldi flugvéla, sem sumar hverjar geta borið kjarnorkuvopn, eyðilögðust. Óhætt er að segja að hjónin hafi lifað nokkuð ævintýralegu lífi.
New York Post fjallar um hjónin. Eiginmaðurinn heitir Artem Timofeev og er 37 ára gamall en hann starfaði áður sem plötusnúður. Rússar fullyrða að hluti þeirra flutningabíla sem notaðir voru til að aka drónum með sprengjum að flugvélunum, þar sem þær stóðu á herflugvöllum, hafi verið í eigu fyrirtækis Timofeev.
Fullyrt er sömuleiðis í rússneskum fjölmiðlum að 34 ára gömul eiginkona hans, Ekaterina Timofeeva sem iðulega er kölluð Katya, hafi aðstoðað eiginmann sinn við hans hlut í hinni leynilegu aðgerð Úkraínumanna. Katya er raunar rithöfundur en hennar sérgrein eru erótískar skáldsögur.
Katya er sögð hafa verið afar virk á samfélagsmiðlum en Rússar segja að ekkert hafi orðið vart við hana í netheimum síðustu tvær vikur og hún hafi nú eytt öllum innleggjum sínum á samfélagsmiðlum.
Hjónin eru að sögn úkraínsk og uppalin þar í landi en höfðu flutt til Rússlands en það liggur ekki fyrir hvenær það nákvæmlega var. Þau munu hafa búið í íbúð í borginni Chelyabinsk í suðurhluta Úralfjalla en árásin á flugflota Rússa var framin á herflugvöllum í Irkutsk, sem er töluvert austar en Chelyabinsk, skammt norðan við Mongólíu. Ljóst er því að um langan veg var að fara fyrir flutningabílana sem báru drónana með sprengjunum.
Síðast sást til Artem Timofeev í íbúð hjónanna fyrir viku síðan. Hann mun hafa stofnað flutningafyrirtæki sitt í desember síðastliðnum. Hvort það var sérstaklega stofnað vegna árásarinnar er óljóst.
Hann hafði selt föt og starfað sem plötusnúður í Kiyv, höfuðborg Úkraínu, áður en þau hjónin fluttu til Rússlands.
Hvort þau hjónin séu starfsmenn úkraínsku leyniþjónustunnar, sem stóð fyrir árásinni, eða hvort þau voru sérstaklega fengin til að vinna að henni liggur ekki fyrir.
Árásin sem hefur þótt djarfleg í meira lagi fór þannig fram að flutningabílum var ekið inn á fimm flugvelli. Á þökum þeirra voru faldir drónar sem vörpuðu sprengjum á herflugvélar sem stóðu á flugvöllunum. Alls var um 117 dróna að ræða að sögn Úkraínumanna.
Árásin hefur verið kölluð Pearl Harbor Rússlands og kom þarlendum yfirvöldum algerlega í opna skjöldu. Um þriðjungur flota Rússa af TU-95 sprengjuflugvélum, sem geta borið kjarnorkuvopn, eyðilagðist og sömuleiðis 41 venjuleg herfugvél.