fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Pressan

Ása lýsir því hvernig Rex bað hennar og hvað hann gerði á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2009

Pressan
Þriðjudaginn 10. júní 2025 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arkitektinn Rex Heuermann hefur setið í gæsluvarðhaldi í New York í tvö ár, en hann er grunaður um að hafa myrt minnst 7 ungar konur á árunum 1993-2011, eða með öðrum orðum – Rex er grunaður um raðmorð.

Málið hefur vakið töluverða athygli hér á landi því Rex var giftur konu af íslenskum ættum og samkvæmt nýrri heimildaþáttaröð, The Gilgo Beach Killer: House of Secrets, var skilnaður hjónanna aðeins málamyndagerningur. Ása Guðbjörg Ellerup trúði engu slæmu upp á Rex sinn sem hún kynntist fyrst þegar hún var aðeins táningur.

Sjá einnig: Ása segist vera að falla aftur fyrir Rex – „Hann er hetjan mín“

Ástarsaga Ásu og Rex

„Við vorum gift í 27 ár. Ég kynntist Rex þegar ég var 18 ára gömul,“ segir Ása í þáttunum og bætir við: „Hann er þessi týpa af manni sem tekið er eftir. Hann var hávaxinn og myndarlegur ungur maður. Ég dýrka hávaxna, dökkleita og myndarlega menn. Ég féll á þessum tíma kolflöt fyrir honum, á því leikur enginn vafi.“

Þó að Ása hafi fallið strax fyrir Rex fór það þó svo að hún giftist öðrum manni en hún og Rex urðu vinir. Hún eignaðist frumburð sinn, Christopher, með þessum fyrri eiginmanni sínum en fljótlega eftir að sonurinn kom í heiminn fór eiginmaður hennar að sýna sitt rétta andlit. Hann var ekki maðurinn sem hún giftist og Ása ákvað að sækja um skilnað.

Eiginmaður hennar tók því illa en þá mætti Rex og sagði Ásu að hafa engar áhyggjur. Hann myndi styðja hana í gegnum skilnaðinn. Rex reddaði henni lögmanni og borgaði fyrir þjónustu hans,

„Eftir þurftum við ekki að halda aftur að okkur svo Rex sagði: „Ég á gott hús, það er ekki stórt og ekki íburðarmikið en hvernig litist þér á að koma og sjá hvort þú viljir búa þar?“ Síðan komst ég að því að ég væri ólétt af Victoriu og þá sagði hann við mig: Hvernig litist þér á að giftast mér? Ég sagði já og það er til mynd af mér frá brúðkaupsdegi okkar þar sem ég horfi í myndavélina og svipurinn á mér segir: Ég nældi í hann. Hann er minn.“

Trúir því ekki fyrr en hann segir henni það sjálfur

Ása lýsir því í þáttunum að Rex hafi verið fjölskyldumaður og dóttir þeirra Victoria tekur fram að faðir hennar hafi alveg skipt skapi en hann hafi aldrei lagt hendur á fjölskyldu sína heldur í mesta lagi kastað leirtaui í eldhúsvaskinn. Ása segist aldrei hafa tekið eftir nokkru afbrigðilegu eða myrku í fari manns síns. Hefði hún gert það hefði hún hiklaust farið frá honum.

Hún trúir því þó ekki fyrr en Rex horfir í augu hennar og segir henni sjálfur að hann sé morðingi.

Íslandsferð

Meðal annars hefur ákæruvaldið haldið því fram að Ása og börn hafi ekki tekið eftir neinu þar sem Rex hafi stundað myrkraverk sín þegar þau voru ekki heima – einkum þegar þau fóru í lengri ferðalög á sumrin, til dæmis til Íslands. Rex er meðal annars sakaður um að hafa myrt eina konu sumarið 2009 þegar Ása og börnin voru í fimm vikna ferðalagi á Íslandi.

„Ég man að í júlí árið 2009 skipulagði ég fimm vikna ferð til Íslands til að heimsækja fjölskylduna. Maðurinn minn kom ekki með okkur því það er mest að gera í byggingabransanum í New York á sumrin. Hann reyndi að nýta þann tíma sem við vorum fjarverandi til að taka húsið í gegn. Þegar ég var á Íslandi man ég eftir samtali þar sem hann hringdi í mig kvöldið áður en hann skrapp út og sagði: „Ég er búin að leggja allt í rúst og þín bíður óvæntur glaðningur þegar þú kemur heim.“

Ása útskýrir að glaðningur hafi verið nýtt baðherbergi en Rex hafði rifið út allar innréttingar, blöndunartæki, salerni – allt – og endurinnréttað baðherbergið á neðri hæðinni.

Sumarið 2009 hvarf Melissa Barthelemy. Um viku eftir hvarf hennar fór fjölskylda hennar að fá skuggaleg símtöl þar sem ókunnugur aðili hæddist að þeim, fór ljótum orðum um Melissu og tilkynnti fjölskyldunni svo að Melissa væri látin og að hann myndi njóta þess að fylgjast með henni rotna. Lík Melissu fannst við Gilgo-ströndina árið 2010 og Rex Heuermann hefur verið ákærður fyrir morðið.

Þá er hann pabbi minn

Dóttir þeirra Victoria hefur aðeins blendnari tilfinningar og segist tilbúin að taka því að faðir hennar sé sekur. Það breyti því þó ekkert að hann er og verður faðir hennar. Vissulega muni hún hata hann, en hún muni þó áfram elska hann líka. Báðar tilfinningarnar geti verið til staðar á sama tíma.

„Hvort sem umheiminum líkar það betur eða verr, eða hvort mér líki það betur eða verr þá er hann pabbi minn. Það getur enginn tekið það frá mér. “

Victoria útskýrir að þó að foreldrar hennar hafi nýlega gengið frá lögskilnaði þá séu þau öll enn fjölskylda. Skilnaðurinn var til málamynda til að tryggja að Ása og börn hefðu þak yfir höfuðið.

„Ég skil hvers vegna hún skildi við pabba. Þau skildu til að verja eignirnar okkar. Nú er þetta löglega hennar hús. Hún var gift honum svo hún fær þessar eignir í skilnaðinum. Ef við hefðum misst húsið værum við heimilislaus. Þetta er okkar hús. Skilnaðurinn þýðir ekki að við séum ekki lengur fjölskylda.“

Engu að síður hefur Ása ákveðið að selja húsið enda hafi góðu minningarnar fljótt fallið í skugga áfalla síðustu ára. Nú taki nýr kafli við.

„Nú hefur lífið í þessu húsi liðið undir lok, það lætur mér líða eins og það sé að eiga sér stað nýtt upphaf. Hvernig þetta líf mun líta út veit ég ekki. Ég kemst að því á endanum. Ég mun takast á við þetta eins vel og ég get. Ég er búin að gera það sem ég þurfti til að vernda mig og börnin.“

US greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona fjarlægir þú rauðvínsbletti án þess að nota hreingerningarefni

Svona fjarlægir þú rauðvínsbletti án þess að nota hreingerningarefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stóð fyrir einu umtalaðasta svindli íþróttasögunnar – Hélt fast við framburð sinn allt til dauðadags

Stóð fyrir einu umtalaðasta svindli íþróttasögunnar – Hélt fast við framburð sinn allt til dauðadags
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna áttu aldrei að sofa í sokkum

Þess vegna áttu aldrei að sofa í sokkum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hafa verkjalyf minni áhrif á konur?

Hafa verkjalyf minni áhrif á konur?