fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Pressan

Ummæli Trumps um látna leikstjórann vekja mikla hneykslun – „Eyddu þessu, herra forseti“

Pressan
Þriðjudaginn 16. desember 2025 11:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti gekk fram af flestum með furðulegri færslu sinni á Truth Social um lát leikstjórans Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Reiner. Hjónin fundust myrt á heimili sínu og er sonur þeirra grunaður um ódæðið.

Í færslu sinni virtist hlakka í Trump yfir láti leikstjórans sem svíður ummæli hans um sig og rakti hann lát hjónanna til meintrar þráhyggju Reiners um sig, eða nánar tiltekið til ólæknandi reiði sem rekja megi til andlegs sjúkdóms sem beri heitið „Trump Derangement Syndrome“.

Rob Reiner fylgdi demókrötum að málum og gagnrýndi forsetann oft harðlega.

Á blaðamannafundi í gærkvöld var Trump spurður út í þessi ummæli og þá svaraði með því að segja að Reiner hefði verið andlega truflaður maður og slæmur fyrir landið. Gaf semsagt ekkert eftir heldur bætti í.

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi framganga forsetans hefur vakið gífurlega reiði og hneysklun, ekki síst á meðal listamanna. Metro tekur þetta saman og greinir meðal annars frá ummælum tónlistarmannsins Jack White í White Stripes sem segir: „Trump, þú viðbjóðslegi mikilmennskubrjálæðingur, krakki. Hvorki hann né nokkur fylgjenda hans geta varið þess grófu og hryllilegu árás á fallegan lisamann sem gaf heiminum svo mikið.“

„Að nota sorglegan dauðdaga einhvers til að auglýsa eigin hégóma og fasísk áform er spillt og narsissísk synd. Skammastu þín Trump og allir sem verja þetta.“

Leikkonan Whoppi Goldberg spyr Trump hvort hann hafi enga sómakennd og hvort hægt sé að sökkva dýpra. Hún telur ekki svo vera.

Jafnvel sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan, sem oft hefur verið vinveittur forsetanum, fordæmir ummálin. Hann skrifar:

„Þetta voru skelfileg ummæli. Eyddu þessu, herra forseti.“

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sagðist hafa komið að konunni sinni meðvitundarlausri í baðkari en hafði í rauninni drekkt henni

Sagðist hafa komið að konunni sinni meðvitundarlausri í baðkari en hafði í rauninni drekkt henni
Pressan
Fyrir 6 dögum

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 1 viku

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum