„Þetta er ný aðferð,“ sagði flugfarþegi sem sagðist hafa setið í sæti 18E í flugvél á leið til Toronto í Kanada. Samkvæmt sætakorti Delta flugvélarinnar er sæti 18E rétt fyrir aftan neyðarútgang út á væng vélarinnar. Þar af leiðandi er ekkert sæti 17E, sem þýðir aðeins meira fótarými fyrir þann sem er í röðinni fyrir aftan, í sæti 18E.
Flugfarþeginn í sæti 18E vakti athygli á farþeganum í sætaröðinni fyrir framan sig og birti mynd með í færslu á Reddit. Á myndinni má sjá að farþeginn liggur og er á hlið í sæti sínu og hefur fæturna fyrir framan neyðarútganginn þar sem ekkert sæti er og tekur þannig hluta af fótarými farþegans í sætinu fyrir aftan.
Færslan vakti athygli netverja líkt og flestar slíkar um frekju flugfarþega gera. Farþeginn sem birti færsluna birti síðan uppfærslu.
„Flugfreyjan kom til hans og sagði honum að allir farþegar þyrftu að snúa fram við flugtak og kinkaði kolli til mín. Fæturnir á mér eru nú alveg útréttir og verða það það sem eftir er af fluginu.“
Í athugasemdunum voru Reddit-notendur hneykslaðir á hegðun farþegans í fremri röðinni.
„Ég er VIRKILEGA hissa á fólki á hverjum degi,“ skrifaði einn. „Hvernig er fólk svona innréttað? Hvað í ósköpunum.“
Annar deildi eigin reynslu sinni eftir að hafa setið í sæti 18E:
„Ég borgaði 120 dali fyrir að fá þetta sæti í 12 tíma flugi frá Seattle til Kóreu. Gaurinn í sætinu við hliðina á opna rýminu við neyðarútganginn ákvað að nota rýmið sem stað til að geyma bakpokann sinn. Flugfreyjan kom og sagði honum að setja hann í farangurshólfið, en hann gerði það ekki. Ég teygði bara út fæturna samt og byrjaði að hvíla fæturna á bakpokanum hans. Hann dró loksins bakpokann fyrir framan sig.“
Aðrir voru með leiðbeiningar næst þegar svona staða kæmi upp.
„Notaðu hnéð á viðkomandi sem fótskemil.“
„Ég myndi finna þörf fyrir að grípa eitthvað úr töskunni minni á 5-10 mínútna fresti og biðja þá um að hreyfa fæturna í hvert skipti,“ sagði annar. „Eða bara setja töskuna mína á fæturna á þeim eins og farangursgrind.“
Annar velti fyrir sér: „Er þetta tæknilega séð pláss fyrir einhvern? Ég meina, er gaurinn sem þú tókst mynd af virkilega að gera eitthvað rangt? Ég held að hann sé að því, en hann gæti réttlætt hegðun sína með því að segja að rýmið tilheyri ekki sætinu fyrir aftan hann heldur.“