Þessi sjaldgæfi sjúkdómur leggst á 1 af hverjum 100 milljónum. Sjúkdómurinn hefur haft mjög neikvð áhrif á líf mannsins en nú sér hann ljósið við enda gangnanna.
Sjúkdómurinn nefnist „post-orgasmic illness syndrome (POIS)“. Talið er að orsökin fyrir honum sé vegna viðbragða við prótíni sem ónæmiskerfið losar um þegar fullnægingu er náð.
Allt frá því að hann var 14 ára hefur maðurinn glímt við óþægileg sjúkdómseinkenni eftir fullnægingu, skiptir þá engu hvort hún á sér stað í samförum, við sjálfsfróun eða bara þegar hann dreymir blauta drauma.
Meðal sjúkdómseinkenna eru:
Gríðarleg þreyta
Vöðvaverki
Vot augu.
Aðeins er vitað um 50 svona tilfelli á heimsvísu.
Sjúkdómseinkennin hafa gert manninum ókleift að stunda venjulegt ástarlíf og hann hefur glímt við þunglyndi og kvíða.
Hann gafst upp á endanum og leitaði til lækna og það reyndist vera snjallt. Hann greindist með POIS og var boðið upp á lyfið omalizumab, sem er enn á tilraunastigi, en því er sprautað í fólk. Lyfið er venjulega notað við astma, ofnæmi og langvinnum ofsakláða.
Það er einn stór galli við omalizumab, lyfið getur dregið úr kynhvötinni.