Allt er á suðupunkti á milli Ísraels og Írans eftir að Ísraelar réðust á kjarnorkuinnviði landsins í síðustu viku. Hafa löndin gert árásir á hvort annað síðustu daga og óttast margir stigmögnun á milli ríkjanna.
Nú síðast hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjað að því að Bandaríkjamenn geri árásir á Íran ef ekki næst fram diplómatísk lausn á næstu 48 klukkustundum.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær kom fram að Ísraelsher búi ekki yfir nægjanlega öflugum vopnum til að eyða allir þeirri ógn sem þeir telja stafa frá Íran.
Þar ber helst að nefna kjarnorkuvinnslustöðina í Fordow sem er neðanjarðar en þar hefur auðgun úrans farið fram.
Það er góð ástæða fyrir því að stöðin er neðanjarðar enda á að vera erfitt – jafnvel ómögulegt – að gera sprengjuárás sem myndi eyðileggja stöðina. Talið er að aðalrými stöðvarinnar sé á 80 til 90 metra dýpi.
Þó að Ísraelsher eigi ekki nægjanlega öflugt vopn til að eyða stöðinni búa bandamenn þeirra í Bandaríkjunum yfir slíku vopni, GBU-57A MOP. Þetta er eldflaug sem er hönnuð sérstaklega til að geta komist djúpt ofan í jörðina og grandað vopnageymslum eða auðgunarstöðvum eins og Fordow.
Eldflaugin, sem er þróuð af Boeing, er engin smásmíði, eða 13,6 tonn, og er hún talin geta valdið eyðileggingu á allt að 60 metra dýpi. Talið er að ekki þyrfti nema 2 eða 3 slíkar sprengjur til að granda auðgunarstöðinni í Fordow.