fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Elon Musk tapaði kosningunum sem hann reyndi að kaupa – Eyddi gífurlegum peningum en gerði líklega illt verra

Pressan
Miðvikudaginn 2. apríl 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auðkýfingurinn Elon Musk lagði mikið á sig til að freista þess að koma í veg fyrir að Susan Crawford, sem nýtur stuðnings demókrata, yrði kjörinn dómari við hæstarétt Wisconsin. Þessi tilraun hans bar ekki árangur. Þar með verða frjálslyndir dómarar í meirihluta hæstaréttar Wisconsins næstu þrjú árin. Crawford hefur meðal annars í dómarastörfum verndað réttinn til þungunarrofs og rétt fólks til að ganga í stéttarfélög. Musk og Donald Trump Bandaríkjaforseti studdu mótframbjóðanda Crawford, Brad Schimel.

Crawford fagnaði sigrinum í gær en sagðist aldrei hafa órað fyrir því að þurfa að berjast við ríkasta mann heims. „Á uppvaxtarárum mínum í Chippewa Falls hefði mig aldrei órað fyrir því að ég þyrfti að takast á um réttlæti í Wisconsins við ríkasta mann heims eða að ég myndi sigra þann slag.“

Musk og hópar sem hann studdi fjárhagslega við eyddu hátt í þremur milljörðum í kosningabaráttuna. Musk ferðaðist meira að segja sjálfur til Wisconsin tveimur dögum fyrir kosninguna til að gefa tveimur kjósendum ávísanir upp á 136 milljónir.

„Íbúar Wisconsin hafa staðið af sér fordæmalausa árás á lýðræðið okkar, sanngjarnar kosningar og á hæstaréttinn okkar. Wisconsin reis á fætur og tilkynnti hátt og snjallt að réttlætið hefur engan verðmiða og að dómstólar okkar eru ekki til sölu.“

Kjörsókn sló öll met, en demókratar vona að þetta sé vísbending um það sem koma skal – að fólk sem er óánægt með Donald Trump og Elon Musk muni mótmæla þeim á kjörstöðum landsins.

Musk var að sjálfsögðu vonsvikinn með þessa niðurstöðu. Hann skrifaði á Twitter í gær: „Langtímablekking vinstrisins er að spilla dómsvaldinu.“

Schimel tapaði þó með reisn. Þegar hann sá að Crawford hefði sigrað viðurkenndi hann ósigur. Á kosningafundi hans urðu gestir reiðir og ein kona öskraði: Svindl, svindl. Schimel var fljótur að skjóta þá samsæriskenningu í kaf. „Nei,“ sagði hann. „Við verðum að sætta okkur við niðurstöðuna.“

Mögulega urðu afskipti Musk frekar til að tryggja sigur Crawford en til að fyrirbyggja hann. Fjölmiðlar hafa rætt við kjósendur og hafa sumir tekið fram að þeir hafi ekki einu sinni ætlað sér að kjósa en þegar þeir séu framgöngu Musk var þeim gróflega misboðið. Hér væri kominn ýtinn og frekur milljarðamæringur og vildi kaupa kosningar á sama tíma og hann er að skera niður mikið af nauðsynlegri félagslegri aðstoð bandaríska ríkisins. „Hann er að skera allt niður,“ sagði einn. „Fólk þarf á þessum hlutum, sem hann er að skera niður, að halda“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni