fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Pressan

Segja að þessi einfalda „brella“ geti aukið þyngdartap þegar fólk er í megrun

Pressan
Laugardaginn 14. september 2024 17:30

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir glíma við aukakíló og reyna að léttast en því miður sýnir það sig oft að breytingar á mataræði og hreyfingu endast ekki lengi og fólk springur á limminu. Þá verður að nefna hina ýmsu megrunarkúra og skyndilausnir sem eiga að hjálpa fólki að léttast hratt en skila oftast ekki miklum árangri því fólk á erfitt með að halda sig við nýja lífsstílinn.

Nú hafa vísindamenn við Alabama háskólann í Birmingham í Bandaríkjunum komist að því að það skiptir máli á hvaða tíma dagsins fólk borðar ef það er að reyna að léttast.

Þeir komust að því að fólk sem fylgir ströngu mataræði léttist meira en fólk í samanburðarhópnum ef það borðaði á ákveðnum tímum dagsins. Var fylgst með fólkinu í 14 vikur.

Ekki skemmdi fyrir að blóðþrýstingur fólksins lækkaði og það voru meiri líkur á að skap þess væri betra.

En það er hugsanlega ákveðinn ókostur á því að borða á ákveðnum tímum dagsins því þátttakendurnir þurftu að borða „kvöldmatinn“ klukkan 15.

Rannsóknin beindist nefnilega að hluta að því að rannsaka áhrif þess að fólk borði innan ákveðins tímaramma, til dæmis frá 12 til 20 og ekkert þess utan. Það hefur oft verið rannsakað hvort þessi aðferð komi að gagni við að léttast en niðurstöðurnar hafa verið misvísandi.

En nú rannsökuðu vísindamennirnir hvort það að flytja þennan tímaramma til og hafa hann á milli 7 og 15 hefði áhrif. Þeir segja að líkaminn og efnaskipti hans séu betur í stakk búin til að takast á við mat, snemma á daginn og það geti aukið fitubrennsluna enn meira.

Um 90 of feitir fullorðnir voru fengnir til að taka þátt í rannsókninni. Helmingurinn fylgdi tímaramma vísindamannanna en hinn ekki. Rannsóknin stóð yfir í 14 vikur og borðuðu báðir hóparnir hollan mat og hreyfðu sig í 150 mínútur á viku.

Þeir sem fylgdu tímaramma vísindamannanna léttust að meðaltali um 6,3 kg en fólkið í hinum hópunum léttist að meðaltali um 4 kg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Salah hetja Egyptalands
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vissi að eitthvað alvarlegt væri að þegar fastakúnni hætti að mæta

Vissi að eitthvað alvarlegt væri að þegar fastakúnni hætti að mæta
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvarf 3 ára og fannst 42 árum síðar – Hafði ekki hugmynd um að hún væri týnt barn

Hvarf 3 ára og fannst 42 árum síðar – Hafði ekki hugmynd um að hún væri týnt barn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Þú ert Dauði læknir, eitrari, morðingi. Þú ert smánarblettur læknastéttarinnar“

„Þú ert Dauði læknir, eitrari, morðingi. Þú ert smánarblettur læknastéttarinnar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nýjar upplýsingar í máli ferðamanns sem hvarf sporlaust fyrir tveimur árum

Nýjar upplýsingar í máli ferðamanns sem hvarf sporlaust fyrir tveimur árum