fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026
Pressan

Drepinn í gærkvöldi

Pressan
Miðvikudaginn 12. júní 2024 08:11

David Hosier. Mynd/Missourians to Abolish the Death Penalty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Hosier, 69 ára fangi á dauðadeild í Missouri í Bandaríkjunum, var tekinn af lífi í gærkvöldi.

Tíu ár eru síðan Hosier hlaut dóm fyrir að drepa fyrrverandi elskhuga sinn Angelu Gilpin, og eiginmann hennar, Rodney, árið 2009. Mike Parson, ríkisstjóri Missouri, hafnaði í fyrradag beiðni verjenda Hosier um að fresta aftökunni og fór hún því fram á tilsettum tíma.

Sjá einnig: Nú á að drepa mig fyrir glæp sem ég framdi ekki

Banvænum skammti af svefnlyfinu Pentobarbital var dælt í líkama Hosiers og hætti hann að hreyfa sig nokkrum sekúndum síðar. Hann var svo úrskurðaður látinn klukkan 18:11 að staðartíma í gærkvöldi.

Hosier og Angela höfðu átt í ástarsambandi á meðan Angela var enn gift eiginmanni sínum, en hún batt endi á sambandið til að freista þess að laga hjónabandið. Samkvæmt saksóknurum var Hosier allt annað en sáttur við þá ákvörðun.

Hosier neitaði staðfastlega sök í málinu og var bent á það í umfjöllun fjölmiðla að saksóknarar hefðu ekki búið yfir neinum beinum sönnunargögnum um að hann hefði verið á vettvangi þegar morðin voru framin.

„Það eru allir hræddir við dauðann. Það er eitthvað að þeim sem segjast ekki vera hræddir við dauðann,“ sagði hann í viðtali sem hann veitti breska blaðinu Mirror í fyrradag. Hann sagði að trúin og samskipti við vini og vandamenn hefðu hjálpað honum að halda geðheilsunni á síðustu árum og vitneskja hans um það að hann framdi engan glæp.

„Ég veit að ég er saklaus. Ég var ekki á staðnum og drap ekki þetta fólk. Punktur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta landið til að banna þessa tegund af handföngum á rafbílum

Fyrsta landið til að banna þessa tegund af handföngum á rafbílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heimili frá helvíti – Yngstu systkinin deila sögu sinni í fyrsta sinn um áralanga misnotkun og áföll í fóstri

Heimili frá helvíti – Yngstu systkinin deila sögu sinni í fyrsta sinn um áralanga misnotkun og áföll í fóstri
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fór að sofa á laugardagskvöld en horfin á sunnudagsmorgun – Hvað varð um móður sjónvarpsstjörnunnar?

Fór að sofa á laugardagskvöld en horfin á sunnudagsmorgun – Hvað varð um móður sjónvarpsstjörnunnar?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjögur ár liðin frá hinni hrottalegu árás – Missti eyru, nef og varir

Fjögur ár liðin frá hinni hrottalegu árás – Missti eyru, nef og varir