fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Pressan

Jólaskreytingin endaði hörmulega – 10 ára drengur lést

Pressan
Föstudaginn 8. desember 2023 06:30

Mynd úr safni. Mynd:Publicdomainpictures

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn lést hinn 10 ára gamli Augusto Dalmaz Bonata á sjúkrahúsi  í Campo Largo í Brasilíu. Faðir hans kom að honum meðvitundarlausum við hlið jólaseríu, sem hann hafði verið að setja upp. Sjúkraflutningsmenn komu fljótt á vettvang og veittu Augusto skyndihjálp og fluttu á sjúkrahús. Þar lést hann á laugardaginn.

Mirror skýrir frá þessu og segir að systir Augusto, Carolina, hafi reynt endurlífga Augusto á meðan beðið var eftir sjúkraflutningsmönnum en án árangurs. Eins og áður sagði tókst ekki að bjarga lífi hans og lést hann á laugardaginn.

Afi hans lést fyrir nokkrum vikum og er ríkir því mikil sorg hjá fjölskyldunni. Frændi hans, Hebert Bonato, sagði að þetta hafi verið erfiðar vikur. Fyrst hafi afi Augosto dáið og síðan hafi raflost orðið honum að bana. Ekki sé vitað hvort jólaserían hafi verið jarðtengd.

Hann sagði að Augusto hafi verið altarisdrengur í hverfiskirkjunni og hafi verið mjög trúaður. Honum hafi þótt jólin frábær og hafi viljað leggja sitt af mörkum svo jólagleðin næði til sem flestra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna
Pressan
Fyrir 6 dögum

Myndbandið sagt vera þess eðlis að það myndi valda óeirðum ef almenningur sæi það

Myndbandið sagt vera þess eðlis að það myndi valda óeirðum ef almenningur sæi það
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf