fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Pressan

Gamall brunnur lumaði á merkum hlutum

Pressan
Laugardaginn 18. nóvember 2023 22:30

Sandalinn góði. Mynd:Esperanza Martín Hernández

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænskir fornleifafræðingar gerðu merka uppgötvun í sumar þegar þeir rannsökuðu botninn á brunni í Lugo de Llanera í norðurhluta landsins. Þar fundu þeir marga muni, þar á meðal 2.000 ára gamlan sandala sem hefur varðveist ótrúlega vel.

Fyrir um 2.000 árum var einhver að þrífa brunninn góða en þá réðu Rómverjar ríkjum á þessu svæði. Sandalinn hefur runnið af fæti þess sem var að hreinsa brunninn og væntanlega hefur viðkomandi ekki dottið í hug að 2.000 árum síðar myndi hann finnast og þar að auki í mjög góðu standi.

Sandalinn var grafinn í leðju um 3 metra undir yfirborðinu að sögn El País sem segir að vísindamennirnir hafi heillast mjög af hinu góða handverki og hversu mikil natni hefur verið lögð í hin minnstu smáatriði. Sólinn er til dæmis skreyttur litlum hringjum og öðrum mótífum og er úr dökk brúnu leðri.

Það var leðjan sem gerði að verkum að sandalinn hefur varðveist svona vel en sjaldgæft er að hlutir hafi varðveist vel á þessu svæði og á það sérstaklega við um hluti úr lífrænum efnum á borð við leður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum
Pressan
Í gær

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda