fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Pressan

Orðrómur gengur um að bílalest Pútíns hafi orðið fyrir árás

Pressan
Miðvikudaginn 14. september 2022 15:50

Hvað er Pútín að gera með öllum þessum handtökum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil umræða er á samfélagsmiðlunum Telegram og Twitter um að sprengju hafi verið varpað á bílalest Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta í Moskvu. Enn sem komið er hafa þessar fregnir ekki verið staðfestar en hið breska Express hefur greint frá þessu sem og International Affairs.

Samkvæmt þeim orðrómi sem nú gengur ók sjúkrabíll í veg fyrir bílalest Pútíns, annar bíll stoppaði fyrir aftan bílalestina, og sprengu var varpað í þeim tilgangi að ráða Pútín af dögum.


Á Telegram kemur fram að bíllinn sem Pútín var í hafi engu að síður náð að komast á áfangastað. Ennfremur segir að allar upplýsingar tengdar rannsókn á þessu máli séu trúnaðarmál.

Sagt er að aðeins örfáir hafi vitneskju um ferðir forsetans og allir hafi þeir tilheyrt öryggisteymi hans. Eftir þetta atvik hafi þrír þeirra horfið, en þessir þrír hafi verið í fremsta bíl bílalestarinnar.


Um það leyti sem hin meinta árás á að hafa átt sér stað sýndi Google Maps mikla umferðarteppu í miðborg Moskvu sem ýmsir líta á sem staðfestingu á að hún hafi átt sér stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna

Karl konungur með tilfinningaþrungna uppfærslu um krabbameinsbaráttuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal
Pressan
Fyrir 1 viku

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali