fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vasinn var metinn á um 300.000 krónur – Seldist fyrir einn milljarð

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 16. október 2022 15:00

Hann var ekki ódýr. Mynd:Maison Osenat

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var kínverskur vasi boðinn upp hjá uppboðshúsi í Fontainebleau í Frakklandi. Uppboðshaldarar höfðu metið vasann á sem svarar til um 300.000 íslenskra króna en það fékkst gott betur en það fyrir hann því hann var sleginn hæstbjóðanda á sem svarar til eins milljarðs íslenskra króna.

The Guardian skýrir frá þessu. Það kom uppboðshöldurunum algjörlega í opna skjöldu þegar um 30 Kínverjar fóru að berjast um vasann og buðu gegn hver öðrum af krafti. Þegar upp var staðið var hæsta boðið 7,7 milljónir evra eða sem svara til 1.000 milljóna íslenskra króna. Vasinn hafði verið metinn á 2.000 evrur en það svarar til tæplega 300.000 íslenskra króna.

Ofan á hæsta boðið greiðir kaupandinn síðan þóknun til uppboðshússins og var heildarupphæðin þá komin upp í 9,12 milljónir evra sem svarar til um 1,3 milljarða íslenskra króna.

Seljandinn var kona sem hafði erft vasann frá móður sinni sem hafði erft hann frá móður sinni. Hún hafði ekki sjálf séð vasann því hún lét flytja hann beint frá heimili móður sinnar í Bretagne til uppboðshússins Osenat.

Sérfræðingar segja að vasinn sé frá tuttugustu öld og sé mjög venjulegur vasi frá þeim tíma. Ef hann hefði verið 200 árum eldri hefði hann hins vegar verið gríðarlega sjaldgæfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu