fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Mánaðarlegar sektir ef fólk lætur ekki bólusetja sig gegn kórónuveirunni

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. janúar 2022 17:32

„Öfugt bóluefni“ gæti unnið á sjálfsofnæmissjúkdómum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá og með gærdeginum verða Grikkir, 60 ára og eldri, sektaðir um 100 evrur á mánuði ef þeir láta ekki bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Gripið er til þessa ráðs til að fá fleiri til að láta bólusetja sig gegn veirunni.

Lögin voru samþykkt í nóvember og tóku gildi í gær. Grísk heilbrigðisyfirvöld munu nú afhenda fjármálaráðuneytinu upplýsingar um þá sem eru ekki bólusettir og verða sektir sendar út í kjölfarið. Peningarnir munu renna til grískra sjúkrahúsa.

Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra, sagði í síðustu viku í samtali við gríska miðilinn ANT1 að til væri einfalt ráð til að sleppa við sekt. „Þú lætur bólusetja þig og þá þarftu ekki að borga sekt,“ sagði hann.

Þessi aðgerð er talin vel heppnuð nú þegar því frá því að tilkynnt var um sektina fyrir sex vikum hafa 217.000 manns, 60 ára og eldri, látið bólusetja sig og er bólusetningarhlutfallið í þessum aldurshópi nú komið í 90%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir