Nýlega veittu bandarísk yfirvöld heimild til að nota bóluefnið frá Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni fyrir 5 til 11 ára börn. Joe Biden, forseti, hefur sagt þessa ákvörðun marka þáttaskil í baráttunni við heimsfaraldurinn. Í kjölfar ákvörðunarinnar skýrði „Big Bird“, sem er ein af brúðunum í Sesamestræti, frá því á Twitter að hann væri búinn að láta bólusetja sig gegn veirunni og nefndi nokkra kosti bólusetninga. En þetta fór ekki vel í Ted Cruz, þingmann Repúblikana frá Texas sem tjáði sig um málið á Twitter.
Í færslu sinni á Twitter skrifaði Big Bird, sem er sex ára að eilífu,: „Ég fór í bólusetningu gegn COVID-19 í dag! Ég er aðeins aumur í vængnum en þetta veitir líkama mínum auka vernd sem heldur mér og öðrum heilbrigðum.“
https://twitter.com/BigBird/status/1456971880666046465?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1456971880666046465%7Ctwgr%5E%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fpublish.twitter.com%2F%3Fquery%3Dhttps3A2F2Ftwitter.com2FBigBird2Fstatus2F1456971880666046465widget%3DTweet
En þessi skrif fóru illa í Cruz, sem er sjálfur bólusettur og hefur sagt að hann hafi trú á bóluefnum. Hann svaraði færslunni með því að segja: „Áróður í boði stjórnvalda . . . fyrir 5 ára börnin ykkar!“
https://twitter.com/tedcruz/status/1457108504498642953?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1457108504498642953%7Ctwgr%5E%7Ctwcon%5Es1_&ref_url=https%3A%2F%2Fpublish.twitter.com%2F%3Fquery%3Dhttps3A2F2Ftwitter.com2Ftedcruz2Fstatus2F1457108504498642953widget%3DTweet
En Joe Biden var nú ekki sömu skoðunar og Cruz og hrósaði Big Bird á Twitter fyrir að hafa látið bólusetja sig því bólusetning væri besta leiðin til að tryggja öryggi annarra.
En margir hægrimenn hafa tekið undir sjónarmið Cruz. Til dæmis skrifaði Steve Cortes, sem er þáttastjórnandi hjá Newsmax, sem er íhaldssamur miðill: „Áróður af þessu tagi er í raun illur.“
Lisa Boothe, hjá Fox News, sakaði sjónvarpsstöðvar um „heilaþvott á börnum sem eru ekki í hættu vegna COVID“. Þetta er ekki rétt hjá henni, eins og flestum er kunnugt, því börn geta líka smitast af kórónuveirunni og veikst af COVID-19 en þau eru þó í minni hættu en fullorðnir. Í umfjöllun Sky News um málið kemur fram að í lok október hafi 6,4 milljónir bandarískra barna verið búin að greinast með veiruna en það eru 16% af öllum smitum í Bandaríkjunum. Tölur frá bandarísku smitsjúkdómastofnuninni CDC sýna að 471 barn, að minnsta kosti, á aldrinum fimm til ellefu ára hafa látist af völdum COVID-19.