fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Risastórt tungl Satúrnusar berst á miklum hraða frá plánetunni

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 14. júní 2020 10:05

Títan séð frá Cassini geimfarinu. Mynd:EPA/NASA / HANDOUT EDITORIAL USE ONLY

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Næststærsta pláneta sólkerfisins líkist jörðinni okkar ekki mikið. Hin ískalda pláneta samanstendur af gasi og er umkringd stórkostlegu kerfi hringa, hún er líka með hvorki meira né minna en 82 þekkt tungl. En það er eitt sem jörðin á sameiginlegt með Satúrnusi (og öllum hinum plánetunum í sólkerfinu), það er á hverju ári fjarlægjast tungl plánetanna þær.

Nú hafa vísindamenn komist að því að stærsta tungl Satúrnusar, Títan fjarlægist plánetuna hraðar en haldið hafði verið. Í raun 100 sinnum hraðar en talið var fram að þessu, sem svarar til 11 sentimetra á ári. Vísindamenn segja að þetta sé mikilvæg vitneskja sem hjálpi þeim að skilja hvernig plánetur, tungl og hringir þróast.

Tunglið okkar fjarlægist líka jörðina

Þegar Títan fjarlægist Satúrnus, gerist það vegna þess að þyngdarkrafturinn á milli plánetunnar og tunglsins fær þau til að fjarlægjast hvort annað. Það sama gerist á milli jarðarinnar og tunglsins, en það fjarlægist jörðina um 3,8 sentimetra á ári. Með tímanum mun tunglið fjarlægjast jörðina á minni hraða, en fræðilega þýðir flótti tunglsins að eftir milljarða ára verður það svo langt frá jörðinni að það mun taka það 47 daga að fara í kringum jörðina, í dag tekur það um það bil mánuð. Áður en þetta gerist munu þó bæði sólin og jörðin farast.

Tunglkerfið breytist með tímanum

Nú þegar vísindamenn hafa komist að því að Títan færist um 11 sentimetra frá Satúrnusi á ári geta þeir notað þá vitneskju til þess að átta sig á því hvernig kerfi hringa og tungla um Satúrnus hefur þróast. Í dag er vitað að Satúrnus varð til þegar sólkerfið varð til, fyrir um 4,6 milljörðum ára, en mikil óvissa hefur verið um það hvenær tungl plánetunnar urðu til. Nýjar mælingar sýna að tunglin hafi í upphafi verið mun nær plánetunni, sem bendir til þess að tunglkerfið breytist hraðar en vísindamenn höfðu talið.

Títan mun halda áfram að fjarlægjast Satúrnus, þetta mun þó ekki hafa nein áhrif á líftíma plánetunnar í sólkerfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu