fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Heimsfaraldurinn gæti gert út af við frægar danskar tónlistarhátíðir

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 23. september 2020 15:02

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimsfaraldur kórónuveirunnar gæti orðið náðarhöggið fyrir frægar danskar tónlistarhátíðir á borð við Tinderbox í Óðinsvéum og Northside í Árósum. Hátíðunum var aflýst á þessu ári vegna faraldursins og ekki er öruggt að þær fari fram á næsta ári þó búið verði að vinna sigur á kórónuveirunni.

Í umfjöllun Finans kemur fram að DTD Holding, sem stendur fyrir hátíðunum, eigi í alvarlegum fjárhagserfiðleikum. Ef heimsfaraldurinn þróast á annan veg en stjórn fyrirtækisins gerir ráð fyrir þá er afar tvísýnt um að það geti haldið áfram rekstri að því er segir í ársreikningi fyrirtækisins.

Síðustu tvö ár hefur mikið tap verið á rekstrinum. 2018 var það 11 milljónir danskra króna og í fyrra 12 milljónir. Í árslok 2019 var eigið fé fyrirtækisins 30 milljónir. Þessi góða lausafjárstaða gæti þó bjargað hátíðunum þrátt fyrir að tap verði á rekstrinum á þessu ári. Í ársreikningnum kemur fram að unnið sé út frá því að á næsta ári verði hægt að halda Northside, Tinderbox og fleiri hátíðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu