fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Pressan

Enn syrtir í álinn hjá Andrew Bretaprins – Ný skjöl tengja hann enn frekar við Jeffrey Epstein

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 4. ágúst 2020 06:59

Viðtal Andrew við BBC síðasta vetur var ekki talið sannfærandi. Þar ræddi hann ásakanir á hendur honum um kynferðisofbeldi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að enn syrti í álinn hjá Andrew Bretaprins í tengslum við kynni hans af bandaríska auðmanninum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Að minnsta kosti ef miða má við nýbirt dómsskjöl úr einkamáli sem Virginia Giuffre, eitt fórnarlamba Epstein, höfðaði fyrir nokkrum árum á hendur Ghislaine Maxwell unnustu og samstarfskonu Epstein. Maxwell situr nú í gæsluvarðhaldi í New York en hún er sökuð um að hafa aðstoðað Epstein við barnaníð og að hafa tekið þátt í því að hluta sjálf.

Í skjölunum lýsir Giuffre því að þegar hún var 17 eða 18 ára hafi hún verið látin dvelja ein með prinsinum á stórri landareign í Santa Fe í Bandaríkjunum. Þar var hlutverk hennar að sinna prinsinum á meðan hann dvaldi þar. Gilti þá einu hvort um útreiðartúra, sundferðir eða nudd var að ræða. The Mirror skýrir frá þessu. Giuffre segist hafa verið kynlífsþræll Epstein á þessum tíma.

Virginia Roberts Giuffre

Fyrir „vinnuna“ í kringum prinsinn fékk Giuffre greitt sem svarar til um 130.000 íslenskra króna frá Epstein.

„Vinnan mín fólst í að hafa ofan af fyrir honum í sífellu. Það gat verið að láta hann fá aðgang að líkama mínum í tengslum við erótískt nudd eða bara að fara með honum í reiðtúr.“

Sagði Giuffre fyrir dómi. Hún heldur því einnig fram að það hafi verið Maxwell sem skipulagði þessa dvöl sem átti sér stað 2001. Hún sagði einnig að eftir að dvölinni lauk hafi hún hitt Epstein og Maxwell í New York til að segja þeim frá dvölinni. Epstein var að hennar sögn ánægður með það sem hafði gerst í ferðinni og greiddi henni fyrrgreinda upphæð fyrir.

Jeffrey Epstein.

Mál Epstein er flókið og ljóst að ekki eru öll kurl komin til grafar. Enn er ekki ljóst hversu náin tengsl Andrew prins voru við hann og Maxwell. The Mirror segir að fyrrum starfsmaður á landareigninni í Santa Fe hafi sagt að hann hafi séð prinsinn þar en aldrei nema Epstein og Maxwell væru með í för en það stangast á við það sem Giuffre sagði fyrir dómi. Prinsinn þvertekur fyrir allar ásakanir Giuffre.

Þessi nýju gögn auka enn þrýstinginn á bresku lögregluna um að fá aðgang að skjölum um ferðir prinsins en slík skjöl eru til og ná 30 ár aftur í tímann. Í þeim er hægt að sjá nákvæmar upplýsingar um dagsetningar og tímasetningar ferða hans. Þessi gögn geta væntanlega varpað enn frekara ljósi á málið.

Ghislaine Maxwell. Mynd:Wikimedia

Epstein fyrirfór sér í fangelsi í New York á síðasta ári en hann hafði verið ákærður fyrir mansal. Maxwell á að koma fyrir dóm á næsta ári en hún er meðal annars sökuð um kynferðisbrot gagnvart barnungum stúlkum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir að margir ungir Bandaríkjamenn séu annaðhvort of feitir eða heimskir fyrir herinn

Segir að margir ungir Bandaríkjamenn séu annaðhvort of feitir eða heimskir fyrir herinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Enn einn fanginn tekinn af lífi í Bandaríkjunum

Enn einn fanginn tekinn af lífi í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá

Hlógu þegar þeir óku viljandi aftan á reiðhjólamann – Dæmdir í vikunni og hlógu ekki þá
Pressan
Fyrir 5 dögum

25 ár frá dauða Kirsty MacColl: Fyrrverandi eiginmaður sakar milljarðamæring um yfirhylmingu

25 ár frá dauða Kirsty MacColl: Fyrrverandi eiginmaður sakar milljarðamæring um yfirhylmingu