fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Pressan

Fleira svart fólk en hvítt deyr af völdum COVID-19

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 8. maí 2020 21:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný gögn, sem bresk yfirvöld hafa tekið saman, benda til að dánartíðnin meðal svartra, af völdum COVID-19, sé mun hærri en dánartíðnin hjá hvítu fólki. Aðrir minnihlutahópar, miðað við hörundslit, virðast einnig fara verr út úr sjúkdómnum en hvítt fólk. Í niðurstöðum samantektarinnar er tillit tekið til margvíslegra samfélagsaðstæðna hinna ólíku hópa.

Í umfjöllun breskra fjölmiðla kemur fram að svart fólk og fólk ættað frá meðal annars Indlandi og Bangladess sé í mun meiri hættu á að látast af völdum COVID-19 en hvítt fólk. Breska hagstofan segir að þetta sé einnig raunin þegar búið er taka tillit til hinna ýmsu félagslegu þátta.

Breskir vísindamenn segja að mikið skorti á þekkingu þeirra á veirunni. Þeir benda einnig á að mikill munur sé á dánartíðni hinna ýmsu þjóðfélagshópa hvað varðar kyn, aldur og uppruna. Þeir segja að væntanlega leynist mörg svör í erfðafræðinni sem muni koma í ljós á meðan unnið er að þróun bóluefnis eða lyfja gegn sjúkdómnum.

Þegar búið er að taka tillit til félagshagfræðilegra þátta eru 4,2 sinnum meiri líkur á að svartir karlar látist af völdum COVID-19 en hvítir. Hjá konunum eru 4,3 sinnum meiri líkur á að þær svörtu látist en hvítar.

Karlar frá Indlandi og Pakistan eru 1,8 sinnum líklegri til að deyja af völdum sjúkdómsins en hvítir.

Tölur frá Bandaríkjunum hafa einnig sýnt að meiri líkur séu á að svart fólk látist af völdum sjúkdómsins en hvítt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni

Suðurkóreski herinn stendur frammi fyrir nýjum vanda vegna lágrar fæðingartíðni
Pressan
Í gær

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lést eftir að hafa borðað brokkolísamloku – Fjöldi fólks á sjúkrahúsi

Lést eftir að hafa borðað brokkolísamloku – Fjöldi fólks á sjúkrahúsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Herða reglur um skotvopnaeign í kjölfar skelfilegra mála

Herða reglur um skotvopnaeign í kjölfar skelfilegra mála
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sextán ára stúlka og tveir yngri piltar handtekin vegna morðs

Sextán ára stúlka og tveir yngri piltar handtekin vegna morðs
Pressan
Fyrir 3 dögum

Byrjaði á OnlyFans á 18 ára afmælisdaginn – Þénaði 140 milljónir á fyrstu þremur klukkustundunum

Byrjaði á OnlyFans á 18 ára afmælisdaginn – Þénaði 140 milljónir á fyrstu þremur klukkustundunum