fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Óttast árásir öfgahægrimanna í Þýskalandi – Stóraukin gæsla

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 25. febrúar 2020 18:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kjölfar hryðjuverksins í Hanau í síðustu viku þar sem öfgahægrisinninn Tobias Rathjen skaut níu til bana og særði fjöldamarga óttast yfirvöld fleiri árásir öfgahægrimanna. Því hefur verið ákveðið að auka gæslu á fjölmörgum stöðum.

Á fréttamannafundi á föstudaginn sagði Horst Seehofer, innanríkisráðherra, að árásin í Hanau hafi verið „hryðjuverkaárás öfgahægrimanns“. Hann sagði þetta vera þriðja hryðuverkið, framið af öfgahægrimönnum, á nokkrum mánuðum og að ástæða sé til að óttast að fleiri séu yfirvofandi.

„Ógnin sem stafar af öfgahægrimönnum, gyðingahatri og kynþáttahyggju er mjög mikil í Þýskalandi.“

Sagði hann og bætti við að yfirvöld muni nú grípa til aðgerða til að auka öryggið. Lögreglumenn munu sinna gæslu á ákveðnum stöðum, til dæmis við moskur, á flugvöllum og lestarstöðvum.

Eftir að hafa skotið fólk til bana á tveimur vatnspípukaffihúsum skaut Rathjen móður sína til bana og tók síðan eigið líf. Hann skildi eftir sig 24 síðna stefnuyfirlýsingu og myndband þar sem hann lét andúð sína á fólki með tyrkneska og arabískan bakgrunn í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir