fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Íslamskir öfgamenn tengjast umfangsmiklu skattsvindli í Danmörku – Féð hugsanlega notað til hryðjuverkastarfsemi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 18. september 2019 19:30

Krónurnar streymdu yfir Eyrarsund.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur öfgasinnaðra íslamista, dæmdir hryðjuverkamenn og menn sem hafa barist í stríðinu í Sýrlandi tengjast umfangsmikilli svikamyllu með skattgreiðslur í Danmörku undanfarið ár. Þeir virðast hafa svikið ríkissjóð um háar fjárhæðir.

Jótlandspósturinn og Dagbladet Information skýra frá þessu. Fram kemur að 14 menn tengist málinu og hafi þeim tekist að svíkja rúmlega 800 milljónir danskra króna undan skatti. Þetta er bæði virðisaukaskattur og tekjuskattur. En mennirnir létu ekki þar við sitja því þeir hafa einnig leikið sama leik í Þýskalandi og Svíþjóð.

Tveir þeirra eru öfgasinnaðir íslamistar sem tengjast al-Kaída og Íslamska ríkinu.

Mennirnir stofnuðu fyrirtæki sem söfnuðu upp stórum skuldum vegna virðisaukaskatts og tekjuskatts og voru síðan lýst gjaldþrota. Auk ríkissjóðs skulduðu fyrirtækin mörgum einkafyrirtækjum háar fjárhæðir.

Sérfræðingar óttast að hluti fjármunanna hafi verið notaður til að fjármagna hryðjuverkastarfsemi en þó liggja engar beinar sannanir fyrir um það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér