fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Það er í alvöru svona auðvelt að stela kreditkortanúmerum – Sjáðu myndbandið

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 5. september 2019 14:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband sem sýnir hversu auðvelt það er að stela kreditkortaupplýsingum grunlausra vegfarenda hefur vakið talsverða athygli. Óhætt er að segja að svikahrappar þurfi ekki að hafa mikið fyrir því að stela kortanúmerunum.

Í frétt Mail Online kemur fram að mennirnir sem tóku umrætt myndband í miðborg Manchester hafi verið með lítinn skanna meðferðis. Þessir skannar geta náð kortaupplýsingum séu þeir settir í námunda við kortið, til dæmis þegar gengið er upp að viðkomandi og skanninn settur í námunda við vasa eða tösku. Það tekur skannann aðeins augnablik að ná í upplýsingarnar.

Þegar verkefninu var lokið tengdu þeir skannann við fartölvu þar sem finna mátti allar kortaupplýsingarnar. Þeir notuðu síðan númerin til að kaupa varning á vef Amazon. Í frétt Mail Online kemur þó fram að þeir hafi endurgreitt eigendum kortanna og eytt kortaupplýsingum þeirra.

Þessir skannar búa yfir sambærilegri tækni og posar sem geta tekið á móti snertilausum greiðslum.

Það voru fulltrúar fyrirtækis, SkimSafe, sem framkvæmdu umrædda tilraun en fyrirtækið framleiðir kreditkort sem eru með vörn fyrir slíkum þjófnaði.

Þjófnaður af þessu tagi er algengur í Bretlandi og hefur hann aukist ár frá ári. Björn Granberg, framkvæmdastjóri SkimSafe, furðar sig á því að bresk yfirvöld geri ekki meira til að berjast við þjófnaði af þessu tagi. Bendir hann á að málum þar sem kreditkortaupplýsingum er stolið hafi fjölgað um 400 prósent frá árinu 2011. Talið er að svikahrappar hafi haft rúmar 670 milljónir punda upp úr krafsinu með þessum hætti á síðasta ári og þá er aðeins verið að tala um Bretland.

Fólk getur gert sitthvað til að verjast þessu. Þannig er hægt að fá sérstök veski sem koma í veg fyrir að hægt sé að lesa kortið með samskonar skanna og notaður er í myndbandinu hér að neðan. Þá getur gagnast að vefja kortinu inn í álpappír svo lengi sem hann rifnar ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega