Michelle Bachelet, formaður Mannréttindarráðs Sameinuðu þjóðanna, hefur kallað eftir því að ráðið sendi eftirlitsmenn til Kína til að bregðast við ábendingum um fangelsun og heilaþvott á allt að milljón manns í Xinjiang héraði í Kína. Fólkið sem er talið verða fyrir þessum aðgerðum eru Uighurs múslimar sem kínversk yfirvöld hafa tekið hart á undanfarið og eru ásakanir allt frá ólögmætum handtökum til að reyna „endurmennta“ tugþúsundir manna. Mannréttindarráðið sagði í síðasta mánuði að það hefði áreiðanlegar heimildir fyrir þessum ásökunum.
Hefur ráðið krafist þess að öllum Uighurs múslimum verði tafarlaust sleppt úr haldi ásamt því að óska eftir ítarlegri rannsókn á þessum alvarlegu mannréttindabrotum gagnvart fólkinu. Kínversk stjórnvöld hafna þessum ásökunum og segja að ráðið hafi augljóslega fengið rangar upplýsingar um stöðuna í Xinjiang héraði. Hafna þarlend stjórnvöld einnig öllum ásökunum um að vera heilaþvo ríkisborgara sína.