Ticker Matur

Matur

Þriðjudagstilboð Domino´s hækkar í þriðja sinn á rúmum tveimur árum

Mynd
Dominos Skeifunni. Mynd: Eyþór

Verðið á þriðjudagstilboði Domino´s á Íslandi hefur verið hækkað úr 1200 krónum og upp í 1300 krónur. Þetta er þriðja verðhækkun á tilboðinu frá því í október 2021 en þá vakti það þjóðarathygli þegar verð tilboðsins hækkaði úr 1000 krónum og upp í 1100 krónur. Þá hafði verðið á tilboðinu verið óbreytt í ellefu ár.

Magnús Hafliðason, forstjóri Domino's, hér á landi segir í samtali við Vísi að ástæðurnar fyrir hækkuninni séu afskaplega einfaldar, það séu verðbólga og launahækkanir.