fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Matur

Hollar Rolo kúlur

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 15. október 2023 11:00

Mynd: Heimkaup

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver kannast ekki við Rolo bitana góðu? Hér koma þeir í hollari búningi þar sem karmellan er gerð úr döðlum og hnetusmjöri og kúlunum síðan dýft í dökkt súkkulaði blandað með kókosolíu. Hreint út sagt dásamlegar kúlur til að eiga í kæli nú eða bara borða strax..ommnommm! Fjórir skammtar gera um 16-18 kúlur.

Hráefni

  • 200 g Döðlur
  • 0.5 msk Hnetusmjör
  • 200 g Súkkulaðidropar
  • 1 tsk Kókosolía
  • 5 g Salt

Leiðbeiningar

  1. Setjið döðlur og hnetusmjör í matvinnsluvél og blandið þar til það er orðið að mauki.Kælið maukið í frysti í um 10 mínútur og mótið síðan í litlar kúlur. Setjið því næst kúlurnar í frysti í aðrar 10 mínútur.
  2. Bræðið súkkulaði og kókosolíu saman og dýfið kúlunum í súkkulaðið. Setjið á smörpappír og leyfið súkkulaðinu að harðna. Geymið í kæli eða frysti og laumist í eina og eina eftir löngun.

Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
18.07.2024

Skíthæll í Costco vekur hlátur

Skíthæll í Costco vekur hlátur
Matur
13.07.2024

Ertu með frábæra uppskrift að brauðtertu? Þá getur þú orðið Íslandsmeistari og fengið glæsileg verðlaun

Ertu með frábæra uppskrift að brauðtertu? Þá getur þú orðið Íslandsmeistari og fengið glæsileg verðlaun