fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Matur

Uppáhalds veitingastaður Ricky Gervais í Reykjavík kominn með nýjan eiganda

Unnur Regína
Föstudaginn 3. júlí 2020 10:15

Tómas Þóroddsson er nýr eigandi Messans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingamaðurinn Tómas Þóroddsson sem á og rekur staðina Kaffi Krús og Vor á Selfossi hefur keypt  Messann í Lækjargötu og verða dyr staðarins opnaðar gestum að nýju klukkan 11:30 í dag. Áfram verður lögð megináhersla á ferskan fisk og upplifunin fyrir gesti sú sama og hún var fyrir lokun enda eru yfirþjónn og kokkur staðarins þeir sömu og áður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var út í morgun.

„Það er mikill fengur að þeim enda Messinn þekktur fyrir skotheldan mat og góða þjónustu. Konseptið verður alveg eins en það bætast við nokkrir nýir réttir á seðilinn og það getur nú ekki verið annað en fagnaðarefni fyrir gestina okkar“, segir Tómas Þóroddsson í tilkynningunni.

Messinn er einn vinsælasti fiskistaður borgarinnar en frægt er að þegar Ricky Gervais kom til landsins að skemmta fór hann ítrekað á Messann að borða. Þar segist hann hafa fengið besta laxaborgara í heimi, án gríns.

Messinn var áður í eigu athafnamannsins Jóns Mýrdal, sem seldi sinn hlut vorið 2019, og Baldurs Kristinssonar sem Tómas keypti af.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
07.05.2025

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til
Matur
29.04.2025

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“
Matur
21.03.2025

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“
Matur
03.03.2025

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“