fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Þetta borðar Birgitta Haukdal á venjulegum degi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 12. desember 2020 11:00

Birgitta Haukdal. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgitta Haukdal byrjar daginn á engiferskoti og fær sér popp alla jafna sex sinnum í viku. Hún er óhrædd við að prófa sig áfram í eldhúsinu og deilir skotheldri uppskrift að bleikju með kínóasalati.

Söngkonan og rithöfundurinn Birgitta Haukdal gaf nýlega út tvær nýjar bækur um Láru og Ljónsa, Lára fer í leikhús og Lára lærir að lesa. Það hefur því verið nóg að gera hjá henni undanfarið og við báðum hana um að lýsa hefðbundnum degi í lífi sínu.

„Vinnudagarnir eru mjög mismunandi hjá mér eftir árstíðum. Sumir dagar eru fyrir framan tölvuna á skrifstofunni heima þegar ég er í vinnutörn fyrir bækurnar mínar og aðrir á tónlistaræfingum, í tónlistarkennslu, upptökum og á hinum ýmsu fundum. Ég hreyfi mig mjög reglulega og útivera og göngur í náttúrunni eru í uppáhaldi. Ég stunda jóga bæði heima og á jógastöðvum og þegar það má þá líður mér best ef ég fer reglulega í ræktina. Ég er þó engin öfgamanneskja og tek stuttar æfingar og fleiri frekar en langar og erfiðar. Göngur í náttúrunni gefa mér mest og þá geri ég heima jógateygjur fyrir eða á eftir,“ segir hún.

Meðvituð

Birgitta segist vera mjög meðvituð um það sem hún borðar og reyna eftir bestu getu að leita í hollustuna.

„En auðvitað dett ég líka í óhollustuna og er reglulegur gestur í kökubúðinni Bake me a wish í Garðabænum hjá Sylvíu systur sem gerir svo sjúklegar kökur og gotterí.“

Birgitta borðar ekki rautt kjöt. „En ég borða mikið af fiski og kjúklingi. Ég elska góð salöt og er mikill snarlari. Það er, ég elska popp, hnetur, fræ og alls konar snarl í óhollari kantinum til dæmis nachos og gvakamóle.“

Ágætis kokkur

Birgitta freistast gjarnan til að gera tilraunir í eldhúsinu og lýsir sér sem ágætis kokki.

„Ég er óhrædd við að gera eigin uppskriftir en þykir þó gaman að fara á netið og prófa nýjar. Eins finnst mér líka mjög notalegt að panta gott „take away“ til að brjóta upp vikuna. Ég baka með börnunum en það er ekki mín besta hlið. Sylvía systir fékk öll þau gen þannig að það er gott að treysta á hana. En við gerum kanilsnúða og steikjum kleinur reglulega saman ásamt því auðvitað að baka fyrir jólin,“ segir hún.

Matseðill Birgittu Haukdal

Morgunmatur

Ég fæ mér alla morgna engiferskot og vítamín ásamt hinum ýmsu heilsuskotum sem eru í boði. Vítamín og ómega fæ ég mér líka en morgunmaturinn er svolítið breytilegur eftir árstíðum. Þessa dagana þegar kalt er í veðri og dimmt er hann hafragrautur ásamt eplum eða ávöxtum.

Millimál

Ég borða mikið af hnetum og hollum hnetustykkjum á milli mála. Eyði löngum tíma oft í búðum að leita að góðum stykkjum. Eins á ég nánast alltaf epli eða gulrætur og kaffibollinn er alltaf á sínum stað.

Hádegismatur

Ég viðurkenni það að ég missi stundum af hádegismatnum en annars borða ég oft afganga frá kvöldinu áður. Ef ég er á ferðinni þá er ég ansi tíður gestur á Local.

Millimál á daginn

Ætli ég drekki ekki yfirleitt tvo góða kaffibolla yfir daginn.

Kvöldmatur

Þar er allur gangur á en við eldum og grillum mjög oft bleikju og kjúkling. Við erum líka mikið salatfólk svo það er alltaf mikið af grænmeti með öllum máltíðum. Ég elda þó nánast einu sinni í viku kjöt fyrir hina á heimilinu og fæ mér þá salat. Kvöldsnarl Ég borða sennilega poppkorn sex sinnum í viku. Elska að setjast niður þegar börnin eru sofnuð með popp í skál.

Einföld uppskrift að bleikju

Ofureinföld bleikjuuppskrift sem ég geri með dassi af hinu og þessu.

  • Bleikja
  • Smjör
  • Sojasósa
  • Hvítlauksrif
  1. Smjör og sojasósa brætt saman í potti og bætt út í pressuðu hvítlauksrifi. Passa að hafa ekki of mikið smjör.
  2. Helmingnum helt yfir bleikjuna ásamt svörtum pipar sem fer svo í ofninn eða á grillið.
  3. Passa að hafa hana ekki lengi inni.
  4. Ekki taka tímann þar sem flök eru svo misstór heldur fylgjast með. Þegar bleikjan lítur út fyrir að vera ekki alveg tilbúin, takið hana út. Má vera bleik í miðjunni.
  5. Þegar bleikjan er tilbúin, skvettið aftur yfir hana dressingunni og hafið hana svo með til hliðar fyrir þá sem vilja meira bragð.

Létt kínóasalat

  • 1 dl kínóa á móti 2 dl vatni.
    • Soðið í 15-20 mín.
  • Mangó
    • Skorið í teninga
  • Lúka af kóríander
    • Mynta á sumrin.
  • Granataepli
  • Eitt box kirsuberjatómatar
    • Skornir í helminga.
  • Tvær lúkur spínat
  • Sítrónuolía
    • Dassað yfir sem og góðri ólífuolíu (eða ólífuolíu og kreista vel af sítrónusafa út í)
  • Ca. 1 msk. kóríanderfræ
    • Sett í mortél
  • Salt og pipar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa