María Gomez er gift fjögurra barna móðir sem heldur úti síðunni paz.is þar sem hægt er að nálgast margar virkilega girnilegar uppskriftir. María, sem er hálfur Spánverji, leggur mikinn metnað í eldamennsku sína og þar sem spænsk menning er stór hluti af hennar lífi setur hún reglulega inn uppskriftir að hefðbundnum spænskum réttum.
María Gomez Leggur mikinn metnað í eldamennsku sína.
Nýlega deildi María uppskrift að churros sem er oftast borðað sem morgunmatur á sparidögum á Spáni. DV fékk góðfúslegt leyfi Maríu til þess að deila uppskriftinni:
„Ég ákvað að gera churrosið frekar hefðbundið nema ég bætti í deigið eggi, smjöri og vanilludropum. Við það verða þeir enn gómsætari og bragðmeiri en hin hefðbundnu churros. Svo auðvitað er það algjör skylda að dýfa churrosinu í súkkulaði því annars væri það ekki alvöru churros-máltíð skal ég segja ykkur. Þessu churros er síðan betra að velta aðeins upp úr sykri blönduðum við örlítinn kanil. Þótt churros sé djúpsteikt þurfið þið ei að hræðast því hér nota ég bara djúpa pönnu og olíu svo það er meira eins og maður sé að steikja á pönnu en djúpsteikja. Hér þarf ekki djúpsteikingarpott eða sérstök áhöld.“
Í churrosið þarf
250 ml vatn
55 g ósaltað smjör
1 msk. sykur
1/4 tsk. salt
140 g hveiti
1 stórt egg
1/2 tsk. vanilluextract eða vanilludropar
1 lítri grænmetisolía
Sykur til að velta upp úr:
1/2 bolli sykur
3/4 msk. kanill
Aðferð:
Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og setjið á matardisk
Nú byrjum við á sjálfu churrosinu
Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita
Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, mjög svipað og þegar maður gerir vatnsdeigsbollur
Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5–10 mínútur við opinn glugga
Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu
Setjið deigið í sprautupoka með frekar stórum stjörnustút
Mér finnst best að sprauta svo deigi á smjörpappír í lengjur og klippa í kringum hverja lengju svo hver og ein fái sinn smjörpappírsbút
Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit. Þegar hún er orðin heit lækkið þá ögn undir henni, ekki mikið, bara aðeins
Setjið nú eins og 3–4 lengjur á smjörpappír út á olíuna og takið pappann með töng strax af, mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía
Steikið þar til þeir eru orðnir vel gullinbrúnir og passið að hafa þá nógu lengi svo þeir verði ekki hráir að innan
Setjið þá svo ofan á disk með eldhúspappír til að taka af alla auka olíu
Að lokum er þeim svo velt upp úr sykurblöndunni
Churros með súkkulaðisósu Mynd: María Gomez.
Súkkulaðið með churrosinu
100 g 70 % súkkulaði
1 dl rjómi
klípa af salti
Aðferð:
Setjið allt saman í pott og hrærið stöðugt í meðan súkkulaðið er að bráðna