Öllum stöðum Dunkin‘ Donuts á Íslandi hefur nú verið lokað. Sölustað Dunkin‘ Donuts í Kringlunni var lokað um áramótin en Sigurður Karlsson, forstjóri Basko, sem rak kleinuhringjastaðina, segir að framleiðslan hafi verið of kostnaðarsöm.
„Það var tekin ákvörðun um að loka Dunkin‘. Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú að rekstrarkostnaður hefur verið hár. Kostnaður við framleiðslu hefur verið of mikill og við stóðum frammi fyrir því að þurfa að hækka verð mjög mikið eða slaufa þessu,“ segir hann í samtali við Vísi.
„Við erum búin að verðleggja okkur svipað og í Danmörku og í Svíþjóð, en það var ekki nóg. Við treystum okkur ekki í að hækka verð svo við tókum ákvörðun um það að loka,“ bætir hann við.
Íslendingar tóku Dunkin‘ Donuts fagnandi þegar að fyrsti staðurinn opnaði á Laugavegi í ágúst árið 2015 og stóð fólk í biðröð í marga klukkutíma til að fá ársbirgðir af kleinuhringjum. Tilkynnt var um lokun á fyrsta staðnum í október árið 2017, en Sigurður segir að rekstrarkostnaður hafi orðið honum að falli.
„Þar var mjög mikið að gera og við fengum mjög mikið af fólki. Framleiðslukostnaðurinn var hins vegar hár þar sem voru miklar launahækkanir síðastliðin ár og svo var að sjálfsögðu hár húsnæðiskostnaður. Svo var launahlutfall hátt og það gekk einfaldlega ekki upp.“
Hann bætir þó við að kleinurhingir Dunkin‘ Donuts verði áfram seldir í 10/11 og Kvikk, sem eru í eigu Basko, frá og með næsta mánuði.
„Þeir koma fullbúnir að utan og við munum selja þá eins og hverja aðra vöru.“