Mathallir Reykvíkinga, Grandi Mathöll og Hlemmur Mathöll, hafa útbúið sérstakt Matartal fyrir árið 2019, eða dagatal yfir alla þá daga þar sem haldið er uppá sérstakan mat. Franz Gunnarsson hjá mathöllunum segir í fréttatilkynningu að dagatalið sé liður í því að efla matarmenningu á Íslandi.
„Við þekkjum öll bolludag, sprengidag og aðra hefðbundna og skemmtilega íslenska matardaga. Á þessum dögum er gaman. Við viljum minna á enn fleiri slíka daga og höfum því útbúið Matartalið 2019. Listinn yfir dagana er ekki tæmandi og margir hverjir alþjóðlegir en það gerir ekkert til því þeir eru nógu margir og ljúffengir til þess að hressa upp á nýja árið sem nú er gengið í garð. Matartalið er okkar framlag til að efla matarmenningu landans og hvetja alla Íslendinga til dáða þegar kemur að fæðufjöri,“ segir Franz. Hér fyrir neðan er Matartalið, en einnig er hægt að hafa samband við mathallarnir og fá plakat sent með dögunum ef þess er óskað.
Spaghettídagurinn er 5. janúar. Gott að taka spaghettí-takeout og horfa á spaghettívestra.
Dósadagurinn er haldinn 19. janúar til að minnast dósarinnar; þessarar mögnuðu geymsluaðferðar á mat. Ein grænubaunadós í tilefni dagsins?
Ostadagurinn er haldinn hátíðlegur 20. janúar. Þá borðum við ost – fyrir bragðið og beinin.
Nutelladagurinn er haldinn hátíðlegur 5. febrúar. Nutella á pizzuna, á brauðið, á skonsuna …
Pizzadagurinn er haldinn 9. febrúar og þá fögnum við Napólíbúum sem byrjuðu með pizzuna á 10. öld.
Barþjónadagurinn er haldinn er 24. febrúar. Þetta er dagurinn sem gaman að er að gera sér ferð á næsta veitingastað eða pöbb og knúsa þjónana!
Pönnukökudagurinn eða Fat Tuesday er haldinn hátíðlegur 5. mars. Finnið einhvern góðan pönnukökustað!
Bjórdagurinn er 1. mars. Sala bjórs var leyfð þennan dag árið 1989. Þennan dag er gaman að fagna íslenskum ölgerðum sem hafa skotið rótum víða um land.
Gulrótardagurinn er 4. apríl. Margir halda gulrótarpartí.
„Borðaðu það sem þú vilt“ dagurinn er haldinn 11. maí og þá má sleppa að telja kaloríur.
Bökunardagurinn er haldinn hátíðlegur 17. maí. Þá bökum við og minnumst kaka forfeðra okkar eins og púðursykurskökunnar, hálfmánans.
Mjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur 1. júní ár hvert. Þetta er dagurinn til að fagna íslensku kúnni, mjólkinni og smjörinu.
Fisk og franskar–dagurinn er haldinn hinn 1. júní til að minnast magnaðrar sögu þessa réttar.
Súkkulaðidagurinn er haldinn hinn 7. júlí. Í Evrópu er dagurinn haldinn til að minnast þess þegar Evrópumenn kynntust fyrst súkkulaði.
Pulsudagurinn er haldinn hátíðlegur í mörgum helstu pulsulöndum heims hinn 18. júlí ár hvert.
Dagur grænmetisætunnar er haldinn hátíðlegur víða um heim hinn 1. október ár hvert. Það er kjörið að grípa gúrku í vinnuna á þessum degi.
Kaffidagurinn er 1. október. Dagurinn er tileinkaður kaffiræktendum en á þessum degi á að drekka kaffið óvenju hægt, sleppa gemsanum og horfa í augu þess sem þú sötrar með kaffið.
Kampavínsdagurinn er haldinn hátíðlegur 19. október. Þá er gaman í kampavínshöllum.
Samlokudagurinn er haldinn 2. nóvember.
Dagur þorsksins er haldinn hátíðlegur fyrsta miðvikudag í október. Þá borða allir þorsk og biðja fyrir þorskinum.
Vegan-dagurinn er haldinn hátíðlegur 1. nóvember ár hvert. Þennan dag hvílum við hammarann og höldum okkur við vegan-fæði, jájá.
Tedagurinn er haldinn hátíðlegur 15. desember ár hvert. Dagurinn er haldinn til að minnast teræktenda og stöðu þeirra.