

Leikkonan Gwyneth Paltrow heldur úti vefsíðunni Goop, en í fyrra var mælt með því á vefsíðunni að fara á svokallaðan geitarmjólkurkúr. Kúrinn felst í því að drekka ekkert nema ógerilsneidda geitamjólk í átta daga og á þetta að hreinsa líkamann. Fleiri stjörnur hafa einnig haft hátt um kosti gerilsneiddrar mjólkur, sem kölluð er hrá mjólk, til að mynda leikarinn Martin Sheen.
Í nýrri grein á vef Daily Mail er hins vegar varað við þessari tískubylgju þar sem neysla á ógerilsneiddri mjólk getur valdið ýmsum sjúkdómum og hefur dregið tvo til dauða, eitt barn og einn fullorðinn, í Bretlandi. Þá olli þessi neysla einnig matareitrunarfaraldri í fyrra þar sem 69 manns veiktust.
Gerilsneidd mjólk er nefnilega hituð til að drepa bakteríur en sú ógerilsneidda getur borið með sér hættulega sýkla. Er vísað í skýrslu Public Health England sem skoðaði sjúkdóma sem berast frá dýrum í menn árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að fjöldi búa sem framleiða ógerilsneidda mjólk hafi aukist um sextíu prósent í Bretlandi á fjórum árum. Ógerilsneidd mjólk er bönnuð í Skotlandi en í Englandi og Wales þarf að merkja hana sérstaklega með aðvörun, enda getur mjólkin borið með sér E. coli, listeríu, salmónellu og berkla.