Sérstök vinaverð eru nú í gangi hjá Stóra flugeldamarkaðnum. Að auki er Facebookleikur í gangi þar sem veitt verða vegleg verðlaun.
Vinadagurinn brast á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum í dag, laugardag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis í kvöld.
Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga hvergi hafa dvínað síðustu ár. „Ég hef verið í flugeldabransanum í 36 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag.“
Þrettán ára afmæli Vinadagsins!
„Þetta er í 13. skiptið sem við höldum vinsæla Vinadaginn og því verður allt tryllt þetta árið, stærri sprengjur og mjög veglegur leikur í gangi á Facebook síðunni okkar.“
Vinadagurinn fyrir alla
„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á Facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló heldur betur í gegn.
Í þrjú síðustu ár höfum við verið með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26. til 28. desember. Það er eins í ár, Vinadagurinn gildir til miðnættis í dag og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annars staðar, enn er hægt að kaupa á „vinaverði“ núna á vefsíðunni okkar storiflugeldamarkadurinn.is. Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 19, við Gullinbrú.“
Flugeldaleikur og vegleg verðlaun
„Við erum einnig með stórskemmtilegan
Facebook leikí gangi þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur.“
Hægt er að taka þátt í leiknum á Facebook. Dregið verður í kvöld.