Föndurlist Vaxandi er verslun sem sérhæfir sig í að bjóða upp á fjölbreytt úrval af vörum fyrir listafólk á öllum aldri og hæfnisstigum. Ótal margt er í boði, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Helstu vöruflokkarnir eru myndlistarvörur, skartgripagerð, macrame, sápugerð, kertagerð, resin art, alcohol art, fluid art, mixed media, pappírsföndur, postulínsmálning, steinamálning, taulitun, slímgerð, tie dye, andlitsmálun, skrautskrift, o.m.fl. frá mörgum viðurkenndum gæðamerkjum.
Eðlilega eru ýmis konar myndlistarvörur einna vinsælastar en svo margt spennandi fyrir listamanninn tilheyrir því sviði sem opnar inn á svo margar skemmtilegar og skapandi víddir, allt frá því einfaldasta upp í það flóknasta.
Myndlistafólk getur fundið svo til allt það helsta sem það þarf á að halda, penslar, pappír, teikniblokkir, blýantar, trélitir, tússlitir, vatnsliti, blek, olíumálningu, vandaða striga og trönur í ýmsum stærðum o.m.fl.
Föndurlist var stofnað 2003, og rekið af Geirþrúði Þorbjörnsdóttir og hefur notið sívaxandi vinsælda. Verslun Föndurlistar er staðsett í Strandgötu 75, Hafnarfirði, þar sem hægt er að koma og skoða allt úrvalið og fá persónulega aðstoð við vöruval og notkun.
„Við höfum lagt mikla áherslu á mikið úrval vara á ódýru verði ásamt reglulegu námskeiðahaldi í ýmsum fönduraðferðum. Fólk er oft að koma til okkar og fá upplýsingar um hvernig og hvaða aðferðir þarf að nota til að setja saman næsta listaverk. Það veit hvað það langar að gera, en ekki alveg hvaða efni þarf að nota og hvernig efnin eru notuð saman.“
Reglulega eru haldin verkleg námskeið í ýmsum aðferðum, t.d. Resin Art, Macrame hnýtingar, Alcohol Ink Art o.fl.
Það er alltaf hægt að hringja beint í Föndurlist (á opnunartíma) í síma 553 1800 varðandi nánari upplýsingar um það sem er í boði.
Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Föndurlist, hvað svo sem sköpunarkrafturinn kallar á hverju sinni. Það er svo sannarlega hægt að hafa gaman heima, bæði ein og í hóp.
Njótum þess að skapa.
Hvaða listaverk býr í þér?