Nú eru nettilboð í Byggt og búið 7.-12. október.
Hafðu það kósí um helgina og verslaðu úr sófanum heima. Það er alltaf hægt að panta og sækja, en við sendum hratt og örugglega um allt land og því tilvalið að klára kaupin á byggtogbuid.is
Ekki gráta elskan mín, þó þig vanti vítamín. Nú geturðu slafrað í þig vítamínbombu á hverjum morgni með öllum bláberjunum sem þú tíndir í byrjun hausts! Allir K400 blandararnir frá KitchenAid eru nú á 10.000 kr afslætti – til í 7 mismunandi litum sem eru hver öðrum fegurri! Tilboð: 49.995 kr / Verð áður: 59.995 kr
Aldrei aftur ryksugupokar! Nýjar Nano P1 handryksugur frá Roidmi eru á sérstöku kynningarverði á aðeins 12.995 kr / fullt verð 16.995 kr. Þessar handryksugur eru nettar, fjölhæfar og meðfærilegar. Kraftmikill mótor skilar sér í miklum sogkrafti en er á sama tíma er mjög hljóðlátur. Ryksugurnar eru með HEPA filter sem skilar sér í mun hreinni útblæstri, en síuna er hægt að þrífa og nota aftur og aftur. Svo líta þær bara svo ótrúlega vel út!
Hatar þú líka að ryksuga? Flækist snúran alltaf fyrir þér? Hefurðu brotið ótal blómavasa og styttur með óþjálum barkanum? Þá er Roomba ryksuguvélmenni eitthvað fyrir þig! Byggt og búið er með þrjár týpur af Roomba ryksuguvélmenninu frá iRobot á tilboði. Til dæmis getur þú sparað 15.000 kr á Roomba E5152 ryksuguvélmenninu, en nú er það á 64.995 kr / fullt verð 79.995 kr.
Ryksugan er með iAdapt gervigreind og endurbætt AeroForce hreinsikerfi sem hreinsar allt að 50% betur en eldri gerðir. Hún vinnur með skynjurum til að bregðast umhverfinu og það er lítið mál að stýra og skipuleggja þrif með iRobot HOME appinu.
Þetta er aðeins brot af tilboðunum sem eru í gangi. Sjáðu þessi og fleiri tilboð í vefverslun Byggt og búið.
Einnig hægt að hringja í síma 568-9400 fyrir aðstoð og við svörum fyrirspurnum á Facebook síðu Byggt og búið og í tölvupósti á sala@byggtogbuid.is eins fljótt og hægt er.